ágús27

Unglingalandsmótsnefnd bauð öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd Unglingalandsmóts í Borgarnesi um verslunarmannahelgina í vöfflukaffi í Mennta- og menningarhúsinu að Borgarbraut í gærkvöldi. Góð mæting var á uppskeruhátíðinni. Sjálfboðaliðar, hjálparkokkar, björgunarsveitarmenn, ungmennafélagar og aðrir velunnarar áttu þar notalega stund saman og settu í raun punktinn við þetta stórskemmtilega verkefni sem tókast í alla staði hreint frábærlega vel. Á uppskeruhátíðinni voru myndir

Share on Facebook Meira

ágús02

HSÞ var valið fyrirmyndarfélagið á 13. Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands sem fram fór í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Það var Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sem tilkynnti þessa niðurstöðu á lokaathöfn mótsins á sunnudagskvöldið. Innganga HSÞ vakti mikla athygli og var mikill metnaður lagður í hana af hálfu héraðssambandsins.Umgjörð sambandsins var sömuleiðis til fyrirmyndar á mótinu .

Share on Facebook Meira

ágús02

Í mótslok á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi á sunnudagskvöldið afhenti Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Friðriki Aspelund, formanni UMSB, Sigurðarbikarinn í þriðja sinn en hann er gefinn til minningar um Sigurð Geirdal fyrrverandi framkvæmdastjóra UMFÍ til margra ára. Gefendur eru Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFÍ og Jónas Ingimundarson fyrsti formaður Ungmennafélagsins Þórs í Þorlákshöfn sem var stofnað 1960. Bikarinn er afhentur í mótslok

Share on Facebook Meira

ágús01

13. Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands lýkur í kvöld með flugeldasýningu við tjaldsvæðin. Flugeldasýningin hefst klukkan 23.45. Flestir eru á einu máli um að einstaklega hafi tekist vel til við mótshaldið. Árangur keppenda í öllum greinum var mjög góður, stemningin var einstök og veðrið var mjög gott alla mótsdagana. Umgengni gesta var til fyrirmyndar og umferðin gekk mjög vel fyrir sig.

Share on Facebook Meira

ágús01

Frábær stemning var í Skallagrímsgarði á unglingalandsmótinu í Borgarnesi í dag. Fyrir hádegi var helgistund sem Þorbjörn Hlynur Árnason prestur í Borgarnesi stýrði. Eftir helgistundina var atriði frá Brúðuheimum sem vakti mikla athygli. Síðdegis var glíma í Skallagrímsgarði að viðstöddu miklu fjölmenni. Umgerðin var einstök í garðinum, lygnt og sól skein í heiði. Unglingarnir sýndu frábær tilþrif í glímunni

Share on Facebook Meira

ágús01

,,Við erum afar ánægð með mótið í heild sinni. Við erum stolt og glöð í hjarta,“ sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ. Helga Guðrún sagði að flest atriði hefðu leikið við mótið, keppnin sem slík væri búin að ganga mjög vel fyrir sig. ,,Umgengnin er búin að vera til fyrirmyndar og sannkallaður vináttuandi er búinn að svífa yfir vötnum hér allt mótið. Allt hefur gengið samkvæmt áætlun,“ sagði

Share on Facebook Meira

ágús01

,,Það er ekki annað hægt en að vera sáttur. Það hafa allir hlutir gengið upp, tímasetningar, öll samskipti og svona mætti lengi telja. Ennfremur höfum átt afar ánægjuleg samskipti við keppendur sem og gesti. Ég er bjartsýnismaður maður að eðlisfari en mótið hefur farið fram úr mínum björtustu vonum,“ sagði Björn Bjarki Þorsteinsson, formaður unglingalandsmótsnefndar. Björn Bjarki sagði að veðurguðirnir hefðu verið mótinu afar hagstæðir og það hjálpaði auðvitað mikil til að

Share on Facebook Meira

ágús01

Jófríður Ísdís Skaftadóttir úr Ungmennafélaginu Skipaskaga setti í morgun unglingalandsmótsmet í kringlukasti í flokki 15 ára. Jófríður, sem er aðeins 12 ára gömul, keppti upp fyrir í kringlukastkeppninni. Hún kastaði 33,30 metra. Jófríður sigraði líka í kúluvarpi í flokki 12 ára í gær með kast upp á 11.20 metra. Jófríður er mikið efni en hún hefur lagt stund

Share on Facebook Meira

ágús01

Það eru ekki bara hefðbundnar sjoppur og veitingastaðir í Borgarnesi, sem bjóða upp á veitingar þessa dagana, því víða má finna slíkt meðan á unglingalandsmótinu stendur. Skátar bjóða t.d. upp á kjötsúpu og fleira á tjaldstæðinu í Kárastaðalandi og i Skallagrímsgarði er kjötsúpa í boði ásamt ýmsu fleiri en þar er tónlistardagskrá að auki um miðjan daginn. Í veðurblíðunni er Skallagrímsgarðurinn vinsæll

Share on Facebook Meira

júlí31

Það var þétt setið í brekkunni á Skallagrímsvelli við setningu 13. Unglingalandsmóts UMFÍ í gærkvöldi. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, setti mótið. Auk hennar fluttu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Björn Bjarki Þorsteinsson, formaður unglingalandsmótsnefndar og formaður byggðarráðs Borgarbyggðar, ávörp. Keppendur gengu fylktu liði inn á Skallagrímsvöll í frábæru veðri, stillt var og hitinn um 18 gráður. Keppendur

Share on Facebook Meira

júlí31

Við setningu 13. Unglingalandsmóts Ungmennafélags Íslands í Borgarnesi í gærkvöldi var tilkynnt hvar mótið yrðri haldið 2012. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, tilkynnti það í ræðu sinni að á stjórnarfundi UMFÍ í júlí hefði verið ákveðið að HSK fengi mótið með Selfoss sem mótsstað. Auk Selfoss sóttu UMSE og UFA, Akueyri sem mótsstað, og USÚ, Hornarfjörður sem mótsstað,

Share on Facebook Meira

júlí30

Tvö ný unglingalandsmótsmet voru sett á 13. Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi í dag. Alfons Sampsted, UMSK, setti í met í hástökki í 12 ára flokki. Alfons fór yfir 1,53 metra og bætti gamla metið um einn centimetra. Hann átti síðan góðar tilraunir við 1,55 metra en felldi naumlega. Theatmanii Sturludóttir tvíbætti metið í spjótkasti í 13 ára flokki. Hún kastaði 36,96 metra en fyrir mótið var gamla metið 33,29 metrar.

Share on Facebook Meira

júlí30

13. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands hófst í Borgarnesi í dag og er óhætt að segja að mótið fer glæsilega af stað og ljóst að skemmtilegir dagar eru fyrir höndum. Um hádegið var afhjúpaður bautasteinn sem verður nokkurs konar minnisvarði um mótið í Borgarnesi. Fyrir er annar bautasteinn en hann er minnisvarði um Landsmótið sem haldið var í Borgarnesi 1997. Það

Share on Facebook Meira

júlí30

Veðrið leikur við keppendur og mótsgesti á 13. Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands í Borgarnesi. Gestum fjölgar jafnt og þétt og er mikil umferð sem liggur til Borgarness. Lögreglan hvetur ökumenn að fara varlega, virða umferðareglur svo umferðin megi ganga sem best og bifreiðum sé lagt á merktum svæðum. Keppni í knattspyrnu og frjálsum íþróttum hófst í dag og hafa 3-4 þúsund áhorfendur fylgst með

Share on Facebook Meira

júlí30

Ákveðið hefur verið að keppni í Mótocrossi fari fram á Akranesi. Keppt verður sunnudaginn 1. ágúst kl. 11 - 15. Nánari upplýsingar veitir sérgreinastjóri í síma 617 5312

Share on Facebook Meira

year: 2010 + month: 9
september 2010
2010-9 = 2013-7
2010-9 = 2010-11
2010-9 = 2010-10
2010-9 = 2010-10
2010-9 = 2010-10
2010-9 = 2010-99|2010
10 september 2010
Stjórnarfundur UMFÍ
15 október 2010
Stjórnarfundur UMFÍ
16 október 2010
Sambandsráðsfundur UMFÍ
Næsta síða




 

Þáttur um ULM 2010

 


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar