Landsmót UMFÍ 2009
26. Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí 2009. Um var að ræða sérstakt afmælismót þar sem 100 ár voru liðin frá því að fyrsta mótið var haldið og það einnig á Akureyri.
Á Landsmótinu var keppt í um 30 greinum, hefðbundnum íþróttagreinum sem og svokölluðum starfsíþróttum sem njóta jafnan mikilla vinsælda.
Þátttaka á mótinu var gríðarlega góð en keppendur til landsmótsstiga voru 1.521. Ef saman er talin þátttaka í kynningargreinum, ráðstefnum og öðru því sem boðið var uppá voru þátttakendur 2.725 talsins.
Sjaldan eða aldrei hefur verið boðið upp á jafn glæsilega keppnisaðstöðu og á Akureyri enda eru íþróttamannvirki bæjarins afar glæsileg. Akureyrarbær réðst í það stórvirki að byggja nýjan íþróttaleikvang með stúku fyrir 1000 manns á svokölluðu Hamarssvæði sem einnig er kallað Þórssvæðið. Þessi leikvangur er klárlega einn sá allra glæsilegasti á landinu.
Dagskrá mótsins var afar fjölbreytt, ekki síst menningar- og afþreyingardagskráin sem var fléttuð við keppnisdagskrána.
Sigurvegari í stigakeppni Landsmótsins var ÍBA með 1.819 stig.
UMSE og UFA voru mótshaldarar.












