Landsmót UMFÍ
Landsmót UMFÍ eru fjölmennastu íþróttamót á Íslandi. Fyrsta mótið var haldið árið 1909, en síðan 1940 hafa þau verið haldin 3ja hvert ár með undantekningum. Á Landsmótum er keppt í mörgum greinum íþrótta auk ýmissa starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, starfshlaupi, línubeitingu auk annarra greina. Fjöldi keppenda er um 2000 og þeir sem koma og fylgjast með eru frá 12 til 20.000, en hefur mest farið uppí 25.000 manns árið 1965 á Laugarvatni.
Það sem gerir mót þetta að stórviðburði á Íslandi er hinn mikli fjöldi keppenda og áhorfenda auk mikillar fjölbreytni í keppnisgreinum.












