I. Almennt um Landsmót

1. grein

Landsmót skal halda á 4 ára fresti í júlí  og standa í 3 – 5 daga.


2. grein

Landsmótsnefnd skal skipuð af mótshaldara og stjórn UMFÍ.  Hver sambandsaðili og íþróttabandalag skal skipa landsmótsnefnd og tilkynna forsvarsmann hennar til UMFÍ eigi síðar en 3 mánuðum fyrir mót.


3. grein
Mótið skal vera fjölbreytt og með sem mestum menningarblæ þannig að það sýni störf félaganna í sem ríkustu mæli. Áhersla skal  lögð á að bæta lýðheilsu almennings. Þar er einkum átt við að mótshaldari skuli standa fyrir fyrirlestrum og kynningum á hverju því sem getur leitt til bættrar heilsu fólks.   Í hópgöngu íþróttamanna og forystufólks UMFÍ við upphaf mótssetningar skal áhersla lögð á að keppendur mæti í samstæðum íþróttabúningum merktum sínu sambandi eða félagi, og gangi undir merki þess.


II. Um þátttökurétt

4. grein

Þeir einir hafa rétt til keppni sem eru félagar í ungmennafélagi eða í íþróttafélagi og uppfylla skilyrði viðkomandi sérsambands til keppni með félagi í ákveðinni íþróttagrein þar sem það á við. Keppnislið skulu vera sambandsaðilar UMFÍ og íþróttabandalög. Íþróttabandalög njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og sambandsaðilar UMFÍ


5.grein

Alennt má hvert þátttökulið senda 4 keppendur í hverja einstaklingsgrein og eina sveit í boðsund, boðhlaup og eitt lið í liðakeppni. Hver keppandi má keppa að hámark í 5 einstaklingsgreinum og tveimur boðgreinum í viðkomandi íþróttagrein.


Mótshaldara er heimilt að auglýsa ótakmakaða þátttöku í einstökum greinum, þar sem höfðað er til fjöldaþátttöku. s.s. í almenningshlaupum.

Þá er mótshaldara heimilt að leggja til að fleiri en eitt lið megi taka þátt í liðakeppni, þar sem aðstæður leyfa.  Mótshaldari skal leggja fram tillögu þess efnis til stjórnar UMFÍ a.m.k. 15 mánuðum fyrir Landsmót. Stjórn UMFÍ skal afgreiða tillögur mótshaldara a.m.k. ári fyrir landsmót og sameiginlega skal UMFÍ og mótshaldari tilkynna tilhögun vegna þessa með a.m.k. ársfyrirvara.


6. grein

Þátttökuaðilar skulu tilkynna til mótshaldara þátttöku í keppnisgreinum mánuði fyrir mót. Landsmótsnefnd skal senda drög að tímasettri dagskrá mótsins til aðildarfélaganna í síðasta lagi mánuði fyrir mótið. Lokaþátttökutilkynningar skulu vera komnar í hendur framkvæmdanefndar mótsins 10 dögum fyrir mótið ásamt nafnaskrá keppenda og fararstjóra. Öllum skráningum í einstaklingsgreinar skal fylgja kennitala. Í hlaupagreinum og sundi skal greina frá besta löglega tíma viðkomandi síðustu 12 mánaða. Landsmótsnefnd er heimilt að setja sérstakar reglur í samráði við stjórn UMFÍ um á hvern hátt þátttökutilkynningum skuli skilað.


7. grein

Heimilt er að breyta nöfnum í greinum þar til einum degi fyrir upphaf móts og skulu tilkynningar berast til sérgreinastjóra viðkomandi keppnisgreina.


8. grein
Þátttökugjald er tvennskonar: einstaklingsgjald og liðagjald. Þátttakendum á Landsmótinu ber að greiða þátttökugjald sem er óafturkræft en heimilt er að skipta um nafn án sérstakrar greiðslu. Ákveðið hámarksgjald skal ákveðið af sambandsþingi fyrir hvert mót og skal greitt áður en mót hefst. Í knattspyrnu, körfubolta, handbolta og blaki skal greiða liðagjald.


III. Starfsmenn


9. grein

Óski mótshaldari eftir starfsmönnum frá þátttökuaðilum skal hann gera það mánuði fyrir mót. Hver þátttökuaðili skal leggja til starfsmenn á mótið sé þess óskað samkvæmt eftirfarandi reglu: Einn starfsmann fyrir hverja 25 keppendur.


IV. Um fundi, kærur og fleira

10. grein

Skipuð skal þriggja manna dómnefnd eigi síðar en 6 mánuðum fyrir Landsmót.  Tveir nefndarmanna skulu skipaðir af stjórn UMFÍ og einn af landsmótsnefnd og skal hann vera formaður nefndarinnar. Skal nefndin fjalla um öll deilumál sem koma upp í keppninni og dæma í þeim samkvæmt reglugerð þessari og leikreglum viðkomandi sérsambands þar sem reglugerð þessi nær ekki til. Kærur skulu berast undirritaðar af fyrirliða og aðalfararstjóra skrifstofu mótsstjórnar eigi síðar en 3 klukkustundum eftir lok þeirrar keppni sem kæra á. Kveði reglur sérsambands á um styttri kærufrest skal fara eftir þeim. Fulltrúi kæranda skal vera viðstaddur meðferð málsins og fulltrúi kærða skal einnig eiga þess kost. Dómnefnd skal taka mál fyrir svo fljótt sem auðið er. Úrskurði dómnefndar verður ekki áfrýjað.


V. Aðbúnaður keppenda

11. grein
Tjaldbúðir eru meginform gistingar. Þó skulu þátttökuaðilum standa til boða skólastofur eða annað húsnæði til gistingar. Landsmótshaldari skal sjá fyrir strangri gæslu í og við keppendabúðir þannig að keppendur verði fyrir sem minnstu ónæði á meðan mótið stendur. Hvert þátttökulið skal skipa tjaldbúðastjóra sem tekur fullan þátt í þessari gæslu og ber ábyrgð á sínu liði. 


12. grein
Þátttökuaðilar skulu bera ábyrgð á því að keppendur á þeirra vegum fylgi þeim reglum sem mótshaldari setur, hvort sem er í tjaldbúðum eða annarsstaðar á mótssvæði.


VI. Um stigakeppni

13. grein
a) Einstaklingskeppni
Tíu fyrstu einstaklingar í hverri grein hljóta stig sem hér segir:
1. sæti = 10 stig, 2. sæti = 9 stig, 3. sæti = 8 stig, 4. sæti = 7 stig, 5. sæti = 6 stig,

6. sæti = 5. stig, 7. sæti = 4. stig, 8. sæti = 3 stig, 9. sæti = 2 stig, 10. sæti = 1 stig.
b) Liðakeppni
Tíu fyrstu lið hljóta stig sem hér segir:
1. sæti = 100 stig, 2. sæti = 90 stig, 3. sæti = 80 stig, 4. sæti = 70 stig, 5. sæti = 60 stig, 6. sæti = 50 stig, 7. sæti = 40 stig, 8. sæti = 30 stig, 9. sæti = 20 stig, 10. sæti = 10 stig. 


14. grein

Sigurvegari í hverri keppnisgrein hlýtur sæmdarheitið Landsmótsmeistari í viðkomandi grein. Í liðakeppni þar sem keppt er bæði í karla- og kvennaflokki skal veita eignarbikara til sigurvegara í hvorum flokki fyrir sig. Sá þátttökuaðili sem flest stig fær úr öllum greinum samanlagt er sigurvegari Landsmótsins.


VII. Keppnisgreinar

15. grein
Frjálsar íþróttir (karla/kvenna) Starfsíþróttir
Glíma (karla/kvenna) Sund (karla/kvenna)

Mótshaldari skal ákveða aðrar keppnisgreinar og skulu þær tilgreindar í umsókn mótshaldara um landsmót.  Að auki er heimilt að bæta við keppnisgreinum fram til 1. maí ári fyrir landsmót. Mótshaldari skal tilkynna stjórn UMFÍ, héraðssamböndum, íþróttabandalögum og sérsamböndum hverjar keppnisgreinar verða á landsmóti með a.m.k. árs fyrirvara. Mótshaldari skal jafnframt tilkynna keppnisfyrirkomulag greina  til sömu aðila með a.m.k. árs fyrirvara.


VIII. Um verðlaun

16. grein
Í heildarstigakeppni Landsmótsins skulu 6 efstu þátttökuaðilar fá númeruð verðlaun. Þrír fyrstu í hverri grein hljóta verðlaun. 


17. grein

Þrír fyrstu í hverri grein hljóta verðlaun. Séu tveir eða fleiri jafnir að stigum eða hafi hlotið sama árangur eftir stigatöflu skulu allir hljóta samskonar verðlaun. Um önnur verðlaun en hér eru nefnd vísast til viðkomandi íþróttagreinar.


18. grein
Sérverðlaun sem hér segir:
1. Stigahæstu konu í frjálsum íþróttum.
2. Stigahæsta karli í frjálsum íþróttum.
3. Besta afrek karla samkvæmt alþjóðastigatöflu.
4. Besta afrek kvenna samkvæmt alþjóðastigatöflu.


19. grein
Sérverðlaun verði veitt sem hér segir:
1. Stigahæsta kona í sundi.
2. Stigahæsti karl í sundi.
3. Besta afrek karla samkvæmt alþjóðastigatöflu.
4. Besta afrek kvenna samkvæmt alþjóðastigatöflu.


IX. Gildistími

20. grein

Reglugerð þessi er samþykkt á 46. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var í Keflavík 10. – 11. október 2009 og tekur strax gildi. Ef nauðsyn krefur hefur landsmótshaldari heimild til að víkja frá ákvæði reglugerðar með heimild dómnefndar mótsins. samkvæmt 10. grein.






Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins
Æskulýðsvettvangurinn
isafold

Sambandsaðilar