Íslensk getspá og Íslenskar getraunir eru tvö sjálfstæð félög en með einn framkvæmdastjóra. Í gildi er þjónustusamningur milli félaganna um að Íslensk getspá sjái um rekstur Íslenskra getrauna. Hluti af andvirði allrar sölu félaganna renna beint til uppbyggingar og starfsemi æskulýðs-og íþróttamála og til málefna öryrkja. Því má segja að allir þeir sem spila í leikjum Getspár og Getrauna geti fagnað sigri og átt von á góðum vinningi í leiðinni. Með þáttöku í leikjunum er verið að styrkja nauðsynleg samfélagsleg málefni og leggja traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu þeirra, auk þess að gefa sjálfum sér tækifæri til þess að vinna stórar fjárupphæðir. Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem á 46,67% hlut, Öryrkjabandalagið á 40% og Ungmennafélag Íslands 13,33%. Íslenskar getraunir eru sjálfseignarstofnun innan íþróttahreyfingarinnar þar sem aðild eiga ÍSÍ og UMFÍ eins og hjá Íslenskri getspá, auk Knattspyrnusambands Íslands,

Deila fréttinni Meira

I. Skipting lottótekna UMFÍ: 1. 79% til sambandsaðila. 2. 14% til UMFÍ. 3. 5% til Verkefnasjóðs UMFÍ, úthlutun samkvæmt vinnureglum stjórnar. 4. 2% til Fræðslusjóðs UMFÍ, Minningarsjóður Aðalsteins Sigmundssonar, úthlutun samkvæmt reglugerð sjóðsins. II. Skipting lottótekna sambandsaðila UMFÍ: 1. 20% er skipt jafnt samkvæmt sérstakri reglu. 2. 40% er skipt eftir íbúafjölda samkvæmt sérstakri reglu. 3. 40% er skipt eftir félagsmannafjölda samkvæmt sérstakri reglu. III. Regla vegna jafnrar skiptingar milli sambandsaðila: Skilyrði fyrir úthlutun hvers ár úr jafna hlutanum er að fulltrúi sambandsaðila hafi mætt á síðastliðið sambandsþing/sambandsráðsfund. Hlutur þeirra sem mæta ekki deilist á þá sambandsaðila sem

Deila fréttinni Meira

Íslenskar getraunir hafa starfað síðan árið 1952, en þá hóf fyrirtækið að bjóða getraunaseðil með danskri og sænskri knattspyrnu. Þegar á leið varð enska knattspyrnan meira áberandi, en í dag býður fyrirtækið alls 5 getraunaleiki, þar af 2 hefðbundna seðla og leikina Eurotips, Eurogoals og Lengjuna. Íslenskar getraunir starfa samkvæmt lögum nr. 59/1972 frá Alþingi , sem veita Getraunum einkaleyfi á rekstri íþróttagetrauna á Íslandi. Allur hagnaður af starfseminni rennur til íþrótta- og ungmennafélaga í landinu. Tengdir vefir: Íslenskar getraunir - 1X2

Deila fréttinni Meira

Íslensk getspá, sem rekur happdrættisleikina Lottó 5/38 og Víkingalottó, er sameign Íþróttasambands Íslands, Öryrkjabandalags Íslands og UMFÍ. Lottóið hóf göngu sína í nóvember árið 1986 og var fyrsta beinlínutengda lottóið í Evrópu. Árið 1991 stofnaði Íslensk getspá síðan Víkingalottó í samstarfi við norræn lottó- og getraunafyrirtæki. Tengdir vefir: Íslensk getspá

Deila fréttinni Meira


Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins
Æskulýðsvettvangurinn
isafold

Sambandsaðilar