NSU
Nordisk samorganisation for ungdomarbejde
UMFÍ er í samtökum ungmennafélaga á norðurlöndunum "Nordisk samorganisation for ungdomarbejde - NSU". Á þeim vettvangi er unnið mikið af sameiginlegum verkefnum sem tengja Norðurlöndin saman. Þar má nefna ungmennaskipti, ungmennavikur, markmiðsráðstefnur og ungbændaráðstefnur. Sjá heimasíðu www.isca-web.org
Ungmennavika á Íslandi 1.-8. júlí 2013
Ungmennavika NSU (Nordiske Samorganisation for Ungdomsarbejde) Panorama of Youth – verður haldin á Sólheimum dagana 1.-8.júlí nk. Þema vikunnar er víðsýni, samvinna, traust og umburðarlyndi en þessa þætti verður unnið með í gegnum íþróttir og leik. Markmiðið er að auka víðsýni þátttakenda fyrir ólíkum einstaklingum og auka umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra. Unnið verður með „non-formal education“ nálgun eða óformlegt nám og því skipa hreyfing, útivera og vettvangsferðir stóran sess í dagskrá vikunnar.
UMFÍ og NSU eru þátttakendur í MOVE WEEK herferð sem ISCA (International Sport and Culture Association) stendur fyrir. MOVE WEEK er herferð sem ISCA ætlar sér að verði stærra verkefni á næstu árum. Árið 2012 var tekið sem undirbúningur fyrir árin sem eftir koma og markmiðið er að árið 2020 verið 100 milljónir fleiri Evrópubúa farnir að hreyfa sig reglulega.
Þátttakendur í ungmennaviku fá þjálfun í að skipuleggja, halda utan um og framkvæma viðburði sem hvetja fólk til þátttöku og hreyfingar sér til heilsubótar. Þátttakendur munu vinna áfram með verkefni sín eftir ungmennavikuna í samstarfi við UMFÍ. Tungumál ungmennavikunnar verður danska eða annað norðurlandamál.
Ísland á sæti fyrir sex ungmenni á aldrinum 16.-30. ára. Þátttökugjald fyrir þátttakendur er 25.000 kr. og allt innifalið. Allur kostnaður er greiddur fyrir leiðtoga. Umsóknarfrestur rennur út í lok maí fyrir þátttakendur. Í umsókn þurfa að koma fram helstu upplýsingar, nafn, aldur, heimilisfang, nöfn forráða manna eftir umsækjandi er undir 18.ára aldri og upplýsingar um færni á norðurlandamáli. Stutt ágrip af helstu áhugamálum, námi og af hverju viðkomandi hefur áhuga á að taka þátt.
Allar nánari upplýsingar veitir Sabína Steinunn,landsfulltrúi UMFÍ, á netfanginu sabina@umfi.is eða í síma 568-2929












