Forvarnastefna UMFÍ

Forvarnastefna  Ungmennafélags Íslands byggir á einkunnarorðum hreyfingarinnar ,,Ræktun lýðs og lands”. Markmið með starfi UMFÍ er að ungmenni finni sér heilbrigð áhugamál og lífsstíl og telji sjálfsagt að sniðganga tóbak, áfengi og önnur vímuefni.

 

UMFÍ vill efla forvarnahlutverk sitt á eftirfarandi hátt:

Hvetja til þess að landslögum verði fylgt í hvívetna varðandi neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímuefna og að bann við auglýsingum á slíkum vörum sé virt.

 

Hvetja íþrótta- og ungmennafélög til þess að taka einarða afstöðu gegn neyslu áfengis, tóbaks og annarra vímuefna í tengslum við íþróttastarfsemi og aðra viðburði þar sem börn og unglingar taka þátt.

 

Hvetja íþrótta- og ungmennafélög til þess að auka valmöguleika í íþrótta- og félagsstarfi barna og unglinga og tryggja þannig að þau fái tækifæri til að stunda íþróttir og/eða félagsstarf í samræmi við sínar þarfir, getu og áhuga án sérstakrar áherslu á keppni.

 

Stuðla að aukinni og almennari þátttöku fólks í íþrótta- og félagsstarfi. Virkja ungmennaráð UMFÍ til samstarfs um leiðir í forvarnamálum, m.a. í samstarfi við grunn- og framhaldsskóla landsins og styðja þau ungmenni sem taka ákvörðun um að virða lögin.

 

Hvetja sambandsaðila til að móta starfsreglur um hvernig tekið skuli á vímuefnavanda fólks á vettvangi íþrótta- og ungmennahreyfingarinnar og hvernig unnið skuli að forvörnum

 

Virkja afreksfólk í íþróttum sem fyrirmyndir barna og unglinga.

 

Hvetja til aukinnar fræðslu og umfjöllunar um áhrif og skaðsemi áfengis, tóbaks og annarra vímuefna og gildi þess að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl.

 

Hvetja til forvarnarannsókna og nýtingu þeirra til eflingar í forvarnastarfi.



Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins
Æskulýðsvettvangurinn
isafold

Sambandsaðilar