Fara á efnissvæði
18. júní 2025

Skráning í fullum gangi á Landsmót UMFÍ 50+

Skráning er í fullum gangi á Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer í Fjallabyggð helgina 27. – 29. júní. Hægt er að skrá sig í allar greinar mótsins og matar- og skemmtikvöld til og með mánudagsins 23. júní næstkomandi. 

Á mótinu er boðið upp á 14 íþróttagreinar fyrir alla þátttakendur sem verða 50 ára á þessu ári og eldri. Fólk á öllum aldri getur líka skráð sig í ýmsar aðrar greinar, eins og brennibolta og götuhlaup. 

 

Keppnisgreinar:

Badminton - Boccía - Brennibolti - Bridds - Frjálsar íþróttir - Golf - Pílukast - Pokavarp - Pútt - Pönnukökubakstur - Ringó - Skotfimi - Stígvélakast - Sund.

Laugardaginn 28. júní verður sannkölluð íþróttaveisla við íþróttahúsið á Ólafsfirði en þar getur fólk tekið þátt í LED badmintoni, krullu, petanque, frisbígolfi, minigolfi, ringó, hlaupaskotfimi (biathlon), blaki, pokavarpi og prófað bogfimi. 

Dagskráin er því ansi fjölbreytt fyrir fólk á öllum aldri alla dagana og ættu því flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Mótið hefst föstudaginn 27. júní með keppni í boccía og lýkur því um miðjan sunnudaginn 29. júní með keppni í stígvélakasti og pönnukökubakstri.

Keppnisgreinar fara fram bæði á Siglufirði og Ólafsfirði.

 

Rútur á matar- og skemmtikvöld

Matar- og skemmtikvöldin sem haldin hafa verið á Landsmóti UMFÍ 50+ hafa slegið í gegn í áranna rás. Viðburðurinn fer að þessu sinni fram á veitingastaðnum Rauðku á Siglufirði laugardagskvöldið 28. júní.

Boðið verður upp á gómsætan lambarétt og með því líka heljarinnar stuði og góðri stemningu sem tónhresst tónlistarfólk úr Fjallabyggð mun standa fyrir.

Til að gulltryggja að allir mótsgestir komist til og frá tjaldsvæði er boðið upp á rútuferðir frá Ólafsfirði til Siglufjarðar og aftur til baka síðar um kvöldið.

Við vekjum athygli á því að greiða þarf sérstaklega fyrir miða á matar- og skemmtikvöldið. Aðeins er hægt að kaupa staka miða. Ef einhver ætlar að kaupa miða fyrir hóp fólks er lítið mál að hafa samband við þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568 2929 og leysa málið símleiðis. Sömuleiðis er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöðina ef vandamál koma upp, bæði stór og smá.

 

Allar upplýsingar um Landsmót UMFÍ 50+ og skráning