Vel heppnuð vinnustofa um íþróttir fatlaðra

„Vinnustofan var vel sótt og greinilegt að mikil þörf var á þessum viðburði. Miklar og góðar umræður sköpuðust um íþróttir fatlaðra í Skagafirði. Það verður gaman að vinna úr þeim punktum sem fram komu og koma þeim í farveg,“ segir Halldór Lárusson, svæðisfulltrúi íþróttahéraða á Norðurlandi vestra.
Í byrjun mánaðar héldu Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS), Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) sameiginlega vinnustofu um íþróttir fyrir fatlaða á Sauðárkróki. Vinnustofan var fyrir foreldra, forsjáraðila, íþróttaþjálfara, starfsfólk skóla og áhugafólk um íþróttir í sveitarfélaginu.
Markmið vinnustofunnar var að fá innsýn inn í íþróttastarf fatlaðra og ræða leiðir til að fjölga fólki með fötlun í því skipulagða íþróttastarfi sem nú þegar er í boði í Skagafirði.
Gleðin skín úr hverju andliti
Á vinnustofunni var fjöldi erinda. Valdimar Smári Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með, kynnti verkefnið og sagði frá því hvernig til hefur tekist. Markmið Allir með er að fötluð börn fái tækifæri til að æfa íþróttir í sínu félagi og geti byrjað að æfa á sama aldri og ófötluð börn. Þetta er mikilvægt af því að einungis 4% fatlaðra barna á Íslandi stunda skipulagt íþróttastarf.
Valdimar talaði líka um mikilvægi viðhorfsbreytinga í samfélaginu í garð íþrótta fatlaðra. Fötluð börn verði að fá sömu tækifæri og ófötluð börn.
Verkefnið Allir með hefur farið vel af stað og hafa fjöldi nýrra verkefna farið af stað í gegnum það. Þrjár vörður eru í verkefninu: Íslandsleikar (keppni þar sem eru lið sem keppa á móti hvert öðru í fimm íþróttagreinum), Allir með-leikarnir (meiri kynning á íþróttum) og Unglingalandsmót UMFÍ, en þar geta börn og ungmenni á aldrinum 11-18 ára tekið þátt í fjölmörgum greinum.
Leikarnir eiga það sameiginlegt að þar er boðið upp á íþróttaveislu fyrir börn með fatlanir. Á þessum leikum er gleðin í fyrirrúmi og auk íþrótta er boðið upp á gistipartí, kvöldskemmtun og pizzaveislu.
„Gleðin skín úr hverju andliti á leikunum og að leikum loknum fara börnin heim full sjálfstrausts og hafa eignast nýja félaga,“ sagði Valdimar.
Gott að hafa skýran ramma
Annika Líf Maríudóttir Noack, júdóþjálfari hjá Júdódeild Tindastóls, hélt erindi um þjálfun hjá deildinni og verkefnið Judo For All. Annika fór yfir það hvernig er að þjálfa einhverf börn og kosti júdós, þar á meðal að þar er mikið af reglum og ákveðinn rammi sem iðkendur þurfa að fara eftir.
„Júdódeild Tindastóls er að gera virkilega spennandi og flotta hluti í sínu starfi. Það er dýrmætt að hafa Anniku í þessu starfi með sína menntun og reynslu sem hún getur einnig miðlað áfram til þjálfara í öðrum íþróttagreinum hér á svæðinu,“ segir Halldór Lárusson.
Mikilvægt að hlusta á óskir fatlaðra
„Íþróttastarf er heimur tækifæra,“ sagði Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi, í erindi sem hún flutti um þau tækifæri sem í boði eru hjá Special Olympics á Íslandi. Hún benti á að fötlun geti táknað nánast hvað sem er. Af þeim sökum sé mikilvægt að horfa á einstaklinginn sjálfan og hlusta á óskir hans.
Anna sagði frá verkefninu Unified og lýsti því hvernig það hentar á minni stöðum. Unified er verkefni þar sem fatlaðir og ófatlaðir einstaklingar stunda saman íþrótt, sem dæmi golf, badminton, dans og svo mætti lengi telja. Engin ein tiltekin íþrótt væri því rétt fyrir fatlað fólk.
„Það er ekkert öðruvísi að þjálfa fatlaða einstaklinga og ófatlaða. Þú þarft aðeins að þekkja einstaklinginn og þarfir hans,“ sagði Anna og lagði áherslu á mikilvægi þess að allir leggist á eitt þegar komi að íþróttastarfi fatlaðra. Átti hún þar við sveitarfélög í samstarfi við íþróttafélögin. Sveitarfélögin beri ábyrgð á málefnum fatlaðs fólks og því ættu þau sem dæmi að koma því í gegnum liðveitendaþjónustu sína að fatlað fólk fái aðstoðarfólk með sér á íþróttaæfingar.
Mikilvægt að halda áfram
Eftir fyrirlestrana var boðið upp á vinnustofur þar sem fólk gat komið hugmyndum sínum á framfæri, skoðunum og reynslu. Miklar og góðar umræður sköpuðust.
Þátttakendur í vinnustofunni voru sammála um að mikið og gott íþróttastarf sé nú þegar í boði í Skagafirði og þurfi lítið til að uppfylla þær væntingar sem fólk horfir til með Allir með. Til að vel takist til þurfi þetta að vera gott samstarfsverkefni íþróttafélaga, skóla, sveitarfélagsins og foreldra iðkenda. Á sama tíma töluðu margir um nauðsyn þess að fylgdarmanneskja verði með fötluðum einstaklingum á æfingum í stað foreldra.
Nú að lokinni vinnustofunni munu svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna taka saman efnið sem þar kom fram og koma málum í ferli. Vonast er til að geta byrjað með einhver verkefni þeim tengd á haustmánuðum.
UMSS og svæðisfulltrúar íþróttahéraða á Norðurlandi vestra þakka fyrirlesurum og öllum þeim sem sóttu vinnustofuna kærlega fyrir komuna.


