Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni fyrir verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd í samstarfi við Íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.
Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:
- Auka útbreiðslu og þátttöku barna í íþróttum
- Efla þátttöku barna með fötlun
- Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum
- Efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn tengist stofnun átta svæðisstöðva íþróttahéraða og markmiðum um eflingu íþróttastarfs á landsvísu. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.
Umsóknir eru sendar inn í gegnum vefsíður ÍSÍ og UMFÍ.
- Farðu á vefsíðu ÍSÍ eða vefsíðu UMFÍ.
- Fylltu út rafrænt umsóknareyðublað.
- Sendu umsókn áður en auglýstur umsóknarfrestur rennur út.
Í umsókn skal meðal annars tilgreina:
- Lýsingu á verkefninu og markmiðum þess
- Rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði
- Tíma- og verkáætlun
- Fjárhagsáætlun verkefnisins