Fara á efnissvæði
09. september 2020

40% afsláttur af flugfargjöldum með Loftbrú

Allir íbúar landsbyggðarinnar sem eiga lögheimili í 200-300 kílómetra akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu eiga þess frá og með deginum í dag að fá flugfargjöld á hagstæðari kjörum til borgarinnar. Ríkið niðurgreiðir flugfargjöldin. Verkefnið heitir Loftbrú og er með því ætlar að gera flugsamgöngur aðgengilegri og bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að höfuðborginni. Afsláttarkjörin koma þeim til góða sem vilja nýta margvíslega þjónustu og afþreyingu á höfuðborgarsvæðinu og til að heimsækja ættingja og vini. Loftbrú er ætluð fólki í einkaerindum til höfuðborgarinnar en ekki fyrir ferðir í atvinnuskyni eða hefðbundnar vinnuferðir.  Verkefnið er hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og segir samgönguráðherra þetta mikið réttlætismál.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra kynnti verkefnið í flugstöðinni á Egilsstöðum í dag. Haft er eftir honum á vef Stjórnarráðsins, að Loftbrú er ein af mikilvægari byggðaaðgerðum sem ráðist hafi verið í og skref í að jafna aðstöðumun þeirra sem búa annarsstaðar en á suðvesturhorninu.

Loftbrú veitir 40% afslátt af heildarfargjaldi fyrir allar áætlunarleiðir innanlands til og frá höfuðborgarsvæðinu. Fullur afsláttur er veittur hvort sem valið er afsláttarfargjald eða fullt fargjald. Hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að þrjár ferðir til og frá Reykjavík á ári (sex flugleggir). Út árið 2020 gilda afsláttarkjörin fyrir eina ferð til og frá Reykjavík (tveir flugleggir).

 

Börn og nemar geta nýtt afsláttinn

Framhaldsskólanemar af landsbyggðinni sem stunda nám á höfuðborgarsvæðinu og hafa fært lögheimili sitt tímabundið þangað geta notfært sér Loftbrúna. Börn sem eru með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu en eiga foreldra eða forráðamenn sem hafa búsetu á landsbyggðinni munu einnig eiga rétt á Loftbrú. Unnið er að því að útfæra þjónustuna þannig að hægt verði að bóka lægri fargjöld fyrir þessa tvo hópa. Stefnt er að því að klára þá vinnu fyrir áramót.

Til að nýta Loftbrú auðkennir fólk sig á Ísland.is með rafrænum skilríkjum og þeir sem eiga rétt á Loftbrú fá yfirlit yfir réttindi sín. Þeir sem vilja nýta afsláttinn sækja sérstakan afsláttarkóða sem notaður er á bókunarsíðum flugfélaga þegar flug í áætlunarflugi er pantað.

 

Nánar er hægt að lesa um Loftbrú á loftbru.is