Fara á efnissvæði
14. apríl 2020

500 milljónir til íþrótta- og æskulýðsstarfs

„Það er mikilvægt að fjárveiting þessi skili sér hratt og vel út í samfélagið, svo hjólin haldi áfram að snúast og tjónið af núverandi aðstæðum verði sem minnst,‟ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, en 500 milljónir króna munu renna til íþrótta- og æskulýðsstarfs til að mæta áhrifum COVID-19. Jafn há upphæð fer til menningarstarfs og skapandi greina, með sérstakri áherslu á sjálfstætt starfandi listamenn. Þá verður 100 milljónum króna varið til varðveislu menningararfs með sérstöku framlagi í húsafriðunarsjóð.

Rúmur einn milljarður króna fer því til menningar-, æskulýðs og íþróttastarfs í formi stuðnings vegna COVID-19.

Stuðningurinn byggir á þingsályktunartillögu um fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins, sem samþykkt var á Alþingi þann 30. mars síðastliðinn. Hefðbundin menningarstarfsemi og íþrótta- og æskulýðsstarf hefur nánast lagst af á undanförnum vikum og stór hópur fólks og félaga orðið fyrir miklum tekjumissi, að því er fram kemur í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Haft er eftir Lilju í tilkynningunni að heildaráhrif COVID-19 eigi eftir að skýrast og að mögulega þurfi meiri stuðningur að koma til, svo þessi mikilvæga starfsemi blómstri.

„Við munum taka afstöðu til þess þegar frekari upplýsingar liggja fyrir,“ segir hún.