Fara á efnissvæði
15. desember 2020

60 milljónir frá Íslenskum getraunum

Vegna mikillar þátttöku íslenskra tippara og góðrar afkomu á árinu 2020 hefur stjórn Íslenskra getrauna ákveðið að úthluta 50,3 milljónum króna styrk til afreksdeilda í knattspyrnu, körfuknattleik og handknattleik. Enn fremur hefur verið ákveðið að úthluta 10 milljónum króna í aukaframlag til þeirra 60 félaga sem hafa selt mest og fengið flest áheit vegna sölu á getraunaseðlum.

Áætlað heildarframlag Íslenskra getrauna til íþróttahreyfingarinnar fyrir árið 2020 er rúmlega 200 milljónir króna.

„Það er ánægjulegt að Íslenskar getraunir geti bætt við rúmlega 60 milljón króna framlagi til íþróttafélaganna á þessum erfiðu tímum vegna Covid ástandsins. Á þessu ári hefur viðskiptavinum Getrauna fjölgað umtalsvert og svo virðist sem margir tipparar hafi snúið frá erlendum ólöglegum veðmálasíðum og beint viðskiptum sínum til Getrauna og styðja þannig við bakið á íþróttafélögunum á Íslandi. Aukin sala á íþróttagetraunum er grundvöllur fyrir auknum framlögum Íslenskra getrauna til íþróttafélaganna,“ segir Pétur Hrafn Sigurðsson deildarstjóri hjá Íslenskum getraunum.

UMFÍ á 20% hlut í Íslenskum getraunum. ÍSÍ á 70% og Íþróttanefnd ríkisins 10%.

Meðfylgjandi töflur sýna skiptingu á úthlutun til félaganna, sem hafa selt getraunaseðla og fengið áheit frá tippurum á árinu 2020.

    Upphæð
Númer Félag  10.000.000 kr.
121 Íþróttafélag Fatlaðra 2.430.335 kr.
103 Knattspyrnufélagið Víkingur 891.924 kr.
904 Íþróttafélagið Framherjar 699.449 kr.
128 Íþróttafélagið Ögri 489.247 kr.
700 Íþróttafélagið Höttur 411.738 kr.
240 Umf. Grindavíkur 408.591 kr.
221 Knattspyrnufélagið Haukar 406.303 kr.
900 Knattsp.d. ÍBV 403.306 kr.
144 Bridgesamband Íslands 279.969 kr.
300 Knattspyrnufélag Í.A. 255.364 kr.
400 Íþróttafélagið Vestri 232.429 kr.
108 Knattspyrnufélagið Fram 224.708 kr.
101 Knattspyrnufélagið Valur 197.856 kr.
450 Íþróttafélagið Hörður 189.617 kr.
107 Knattspyrnufélag Reykjavíkur 187.408 kr.
200 Umf Breiðablik 159.689 kr.
109 Íþróttafélag Reykjavíkur 135.337 kr.
580 Knattspyrnufélag Fjallabyggðar  131.139 kr.
110 Íþróttafélagið Fylkir 125.964 kr.
603 Íþróttafélagið Þór 124.808 kr.
780 Umf. Sindri 116.758 kr.
840 Umf. Laugdæla 104.219 kr.
112 Umf. Fjölnir 100.327 kr.
230 Knattspyrnudeild Keflavíkur 93.405 kr.
799 Umf. Skeiðmanna 90.984 kr.
710 Íþróttafélagið Huginn 83.688 kr.
220 F.H. 83.170 kr.
600 Knattspyrnufélag Akureyrar 75.684 kr.
104 Knattspyrnufélagið Þróttur 69.459 kr.
188 IFC Íþróttafélagið Carl 63.076 kr.
355 Knattspyrnudeild UMF Víkings 53.538 kr.
735 Umf. Austri 51.170 kr.
210 Umf. Stjarnan 49.020 kr.
245 Knattspyrnufélagið Reynir 39.006 kr.
190 Þróttur Vogum knattsp.deild 37.940 kr.
866 Knattspyrnufélag Rangæinga 37.261 kr.
111 Íþróttafélagið Leiknir 37.253 kr.
270 Umf. Afturelding 36.460 kr.
620 Umf. Svarfdæla 36.158 kr.
800 Umf. Selfoss 31.827 kr.
202 Íþróttafélagið Gerpla 31.370 kr.
203 Handknattleiksfélag Kópavogs 29.023 kr.
740 Íþróttafélagið Þróttur 26.396 kr.
350 Umf. Grundarfjarðar 20.336 kr.
598 Golfklúbbur Akureyrar 19.415 kr.
675 Umf. Austri 16.652 kr.
247 Golfklúbburinn Setberg 16.334 kr.
224 Golfklúbburinn Keilir 15.939 kr.
260 Umf. Njarðvíkur 13.744 kr.
460 Umf. Tálknafjarðar 13.317 kr.
707 Umf. Þristur 13.150 kr.
132 Íþróttafélagið Ösp 12.708 kr.
137 Tennis-og badmintonfélag Reykjavíkur 12.344 kr.
510 Umf. Geislinn 11.589 kr.
640 Íþróttafélagið Völsungur 11.482 kr.
530 Umf. Kormákur 11.374 kr.
340 Umf. Snæfell 10.353 kr.
272 Golfklúbbur Mosfellbæjar 10.233 kr.
246 Golfklúbbur Sandgerðis 10.030 kr.
690 Umf. Einherji 9.361 kr.
170 Knattsp.d. Gróttu 9.262 kr.