Fara á efnissvæði
03. október 2020

Aðgerðir hertar vegna COVID 19

Áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaleikjum, eins metra nándartakmörkun verður í búningsklefum og öðrum svæðum íþróttafólks og skal sótthreinsa keppnisáhöld á milli notenda. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis sem heilbrigðisráðherra hefur fallist á. Minnisblaðið kveður á um hertar samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu.

Auglýsing heilbrigðisráðherra sem byggir á tillögum sóttvarnalæknis verður birt á morgun og taka þær gildi mánudaginn 5. október.

Í tillögum sóttvarnalæknis segir að í hertari aðgerðum felist að frá og með 5. október verði 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum og að líkamsræktarstöðvum verði lokað. Sundlaugar verða áfram opnar en með þrengri fjöldatakmörkunum eða 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi.

Gerð verður sérstök grein fyrir reglum í íþrótta- og menningarstarfsemi í auglýsingu en ekki verður gert ráð fyrir áhorfendum.

Ekki verða breytingar á starfsemi leik- og grunnskóla og því getur starfsemi Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni farið fram með eðlilegum hætti.

Tekið er fram í minnisblaði sóttvarnalæknis sem nýjar aðgerðir grundvallast á að engar hömlur gilda hjá börnum sem fædd eru 2005 og síðar heldur einungis hjá eldri einstaklingum. Um þá einstaklinga gildir 20 manna hámarksreglan og eins metra nándartakmörkun. Lögð verði áhersla á einstaklingsbundnar smitvarnir eins og kostur er. Sama gildir um æskulýðsstarf, íþróttir og tómstundir leik- og grunnskólabarna.

 

Ítarlegri tillögur um íþróttastarf:

Keppnisíþróttir með snertingu verði leyfðar með hámarksfjölda 50 einstaklinga að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

 

Sjá nánar á heimasíðu heilbrigðisráðuneytis: COVID-19: Hertar samkomutakmarkanir taka gildi 5. október