Fara á efnissvæði
07. febrúar 2023

Æskulýðsvettvangurinn býður upp á hinseginfræðslu

Á Íslandi og í íþrótta- og æskulýðsfélögum landsins er fjöldi barna og unglinga hinsegin og það er mikilvægt að þau finni fyrir öryggi og vellíðan á sínum vettvangi. Þekking og fræðsla í hinsegin málum er grundvöllur fyrir því að draga úr fordómum og mismunun.
Miklu máli skiptir því fyrir þennan hóp að efla þekkingu, auka skilning á stöðu hinsegin fólks og að fagna fjölbreytileikanum.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

Kennari námskeiðsins er Sólveig Rós Másdóttir (hún) sem er foreldrafræðari og uppeldisráðgjafi með M.A. í stjórnmálafræði og viðbótardiplómu í hagnýtum jafnréttisfræðum. Hún hefur starfað í fjölda ára við fræðslu um hinsegin mál, bæði á vettvangi Samtakanna '78 og sjálfstætt, og farið bæði með fræðslu til unglinga, fagaðila, fyrirtækja, foreldra og fleiri.

Námskeiðið verður í sal Skátanna í Hraunbæ 123, 110 Reykjavík. Námskeiðið er opið öllum og aðgangur er endurgjaldslaus.

Námskeiðið á Facebook: https://www.facebook.com/events/467871292195000?ref=newsfeed

Mikilvægt er að skrá sig á námskeiðið. Það er gert hér: https://klik.is/event/buyingflow/00494352-74ee-41d5-bd81-fc4a7c28cd07

 

Hér má sjá námskeiðaáætlun Æskulýðsvettvangsins vorið 2023

11.janúar / Verndum þau / 18:30-21:00
8. febrúar / Hinsegin fræðsla / 18:30-20:30
8. mars / Samskipti og siðareglur / 18:30
29. mars / Inngilding og fjölmenning / 18:30

Skráning: smelltu hér
Fyrirspurnir: aev@aev.is