Fara á efnissvæði
10. október 2023

Ætlarðu að bjóða þig fram?

Við minnum á að frestur til að tilkynna framboð til stjórnar og varastjórnar UMFÍ rennur út í dag, þriðjudaginn 10. október.  

Tilkynning um framboð til stjórnar og varastjórnar UMFÍ skal berast skriflega til kjörnefndar eigi síðar en tíu dögum fyrir þing. Einstaklingur sem býður sig fram til formanns getur jafnframt boðið sig fram til stjórnar og/eða varastjórnar á þinginu kjósi hann svo. Sama á við um einstakling sem býður sig fram til stjórnar og getur hann þá á þinginu boðið sig fram til varastjórnar. 

Formaður UMFÍ og flest af stjórnarfólki UMFÍ gefur kost á sér til áframhaldandi setu í aðdraganda Sambandsþings UMFÍ, sem verður dagana 20. - 22. október næstkomandi. Gissur Jónsson frá Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK) og Lárus B. Lárusson, frá Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) gefa samt hvorugir kost á sér áfram. 

Í stjórn UMFÍ sitja ellefu einstaklingar. 

Við stjórnarkjör skal leitast við að í kjöri séu fulltrúar frá hverju kjördæmi. Ef þessu markmiði hefur ekki verið náð, eftir að framboðsfrestur rennur út, er kjörnefnd heimilt að framlengja framboðsfrestinn um allt að 5 daga og skal sú ákvörðun tilkynnt sambandsaðilum. Heimilt er að bera fram tillögu um fleiri en einn úr hverju kjördæmi. 

Kjörgengir til stjórnar og varastjórnar eru allir skattskyldir ungmennafélagar. 

Tilkynna skal kjörnefnd um framboð til formanns, stjórnar og/eða varastjórnar á netfangið umfi@umfi.is eigi síðar en 10. okótber 2023. 
 
Nánari upplýsingar veitir Einar Kristján Jónsson, formaður kjörnefndar í síma 842 5800.  

53. Sambandsþing UMFÍ verður haldið á Hótel Geysi í Haukadal. 

Allar hagnýtar upplýsingar um 53. Sambandsþing UMFÍ er að finna á sérstöku vefsvæði þingsins: