Fara á efnissvæði
19. júní 2019

Allir sem vilja geta keppt í frisbígolfi í Neskaupstað

Frisbí er ein af greinunum sem í boði eru á Landsmóti UMFÍ í Neskaupstað dagana 28. – 30. júní. Greinin er opin þátttakendum yngri en 50 ára. Þar eru 49 ára og yngri í einum flokki en 50 ára og eldri í öðrum.

Nokkuð sérstakir diskar eru notaði í frisbígolfi og er æskilegt að þátttakendur komi með sína eigin diska.  Hægt verður að kaupa diska gegn sanngjörnu verði á mótsstað.

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

Spilað verður 1 x 9 holur og munu úrslit ráðast að því loknu.

 

Reglur Frisbígolfsins

Folf er spilað líkt og hefðbundið golf nema með frisbídiskum. Takmarkið er að kasta disknum í körfuna í sem fæstum skotum og sá vinnur sem þarf fæst skot. 
Annað skot er tekið þar sem diskur lendir eftir fyrsta skot og sá á fyrst að gera sem lengst er frá körfu. Tillitsemi er stór hluti af leiknum og því er sanngjarnt að mótspilari þinn fái að kasta án truflunar.

Skot frá skotteigi verða að eiga sér stað á eða fyrir aftan ákveðna skotlínu. Ekki kasta fyrr en meðspilarar fyrir framan þig eru komnir úr skotfæri.
 Takið fyrstu upphafsskot eftir fyrirfram ákveðni röð og síðan fer röðin eftir skori síðustu brautar, sá spilari sem var með fæstu skotin tekur fyrstur upphafskot. 
Diska á ávallt að skilja eftir þar sem þeir liggja og ekki taka upp fyrr en skot er tekið.

Það kostar nokkra æfingu að staðsetja fætur rétt þegar kastað er. Sá fótur sem þú setur þungann á í kastinu verður að vera eins nálægt skotstað og kostur er. Hann má aldrei fara yfir skotlínu og ekki meira en 30 cm. fyrir aftan hana eða til hliðar. Hinn fóturinn má vera hvar sem er svo fremi sem hann fari ekki nær körfunni en skotlína er.

Leyfilegt er að fylgja eftir skoti með því að stíga yfir skotlínu eftir að kast er tekið, nema þegar púttað er þ.e. innan 10 metra frá körfu. Ekki er leyfilegt að falla fram fyrir sig til að halda jafnvægi í pútti. Ef diskurinn festist í tré eða runna þá er diskurinn færður og settur á jörðina nákvæmlega fyrir neðan þann stað sem hann sat fastur og kastað er þaðan.

Ef diskurinn lendir á stað sem er ekki hægt að kasta frá er hann færður út úr þeim aðstæðum, þó ekki nær körfu, og kastað þaðan.

 

Hvað er í boði?

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri skemmtun sem fer fram dagana 28.-30. júní. Boðið er upp á fjölda íþróttagreina. Þátttakendur þurfa hvorki að vera skráðir í íþróttafélag né ungmennafélag. Greiða þarf eitt gjald fyrir þátttöku í eins mörgum greinum og viðkomandi vill taka þátt í.

Laugardaginn 29. júní verður skemmtikvöld. Veislustjóri er Jens Garðar Helgason, boðið verður upp á dýrindis kvöldverð og skemmtiatriði. Undir dansi leikur Danshljómsveit Guðmundar R. Gíslasonar. Greiða þarf sérstaklega fyrir skemmtikvöldið. Aðgangseyrir er 5.200 krónur. 

 

Hér getur þú séð allar greinarnar sem eru í boði á mótinu

Myndir úr fleiri greinum sem í boði eru á mótinu