Fara á efnissvæði
08. október 2020

Almannavarnir mæla með því að æfingar allra falli niður á höfuðborgarsvæðinu

Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu  eiga að gera hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum og íþróttafélög innan borgarmarka að fresta keppnisferðum út á land frá 8.-19. október, samkvæmt því er fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Sóttvarnarlæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa sent tilmæli til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu og ítreka þar frekar tilmæli sín vegna aukins fjölda smita, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Búist er við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga.

Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu eru beðin um að gera hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttagreinum frá deginum í dag (8. október) til 19. október eða í tæpar tvær vikur. Jafnframt eru félögin beðin um að fresta keppnisferðum út á land.

Tilmælin eru eftirfarandi:

  • Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er.
  • Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.
  • Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.
  • Takmörkun fjölda í búðum –einn fari að versla frá heimili ef kostur er.
  • Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim
  • Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.
  • Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
  • Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.
  • Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur.

Jafnframt er bent á að tilmæli um ferðalög til eða frá höfuðborgarsvæðinu ná einnig til iðkenda og annarra þátttakenda í íþróttastarfinu.

Heilbrigðisráðuneytið birti fyrr í vikunni reglugerð þar sem vísað er til tilmæla sóttvarnarlæknis og þeirra sjónarmiða hans að stöðva beri allt skipulagt íþróttastarf hjá börnum næstu tvær vikurnar á höfuðborgarsvæðinu. Tilmæli sóttarnarlæknis fela í sér beiðni til fólks um að sýna samstöðu til að draga úr hættunni á smiti.

 

Í tilkynningu yfirvalda segir svo:

Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur.

UMFÍ beinir þeim eindregnu tilmælum til sambandsaðila og aðildarfélaga að hlýða tilmælum yfirvalda.