04. ágúst 2017
Amma skemmtir sér í ringó
![](/media/vmdjttaq/ringo.jpg?width=400&height=400&v=1d9a9c859aeedd0 1x)
Börn og ungmenni og ömmur skemmtu sér konunglega þegar ringó var kynnt fyrir gestum Unglingalandsmóts UMFÍ í Bjarnadal á Egilsstöðum í dag.
Veðrið á Egilsstöðum er afspyrnugott og frábært fyrir keppni af ýmsum toga.
Á meðan Unglingalandsmótinu stendur er boðið upp á alls konar afþreyingu fyrir fjölskylduna. Kennsla er í minigolfi, boccía og frisbígolfi, fimleikalífi og mörgu fleiru. Auk þess er boðið er upp á ratleik í Selskógi, fjölskyldugöngu og hoppukastalar fyrir yngstu kynslóðina.
Mótsgestir geta fundið allar upplýsingar um það sem er í boði í mótaskrá Unglingalandsmótsins.