Fara á efnissvæði
21. júní 2022

Ánægjuvogin 2022: Mikilvægt að íþróttir séu fyrir alla

„Andleg og líkamleg heilsa er betri hjá þeim sem stunda íþróttir. Það er mikilvægt að upplýsa alla um það og koma því á framfæri,“ segir Mar­grét Lilja Guðmunds­dótt­ir, sér­fræðing­ur hjá Rann­sókn­um og greiningu og kenn­ari við íþrótta­fræðideild Há­skól­ans í Reykja­vík.

Margrét kynnti niðurstöður Ánægjuvogarinnar í dag. Ánægjuvogin er hluti könnunarinnar Ungt fólk sem Rannsóknir og greining hefur staðið fyrir síðastliðna tvo áratugi meðal barna og ungmenna. Ánægjuvoginni er ætlað að skoða sérstaklega  ungmenni í 8., 9. og 10. bekk sem stunda íþróttir innan aðildarfélaga ÍSÍ og UMFÍ. Kynninguna sátu fulltrúar ÍSÍ og UMFÍ auk forsvarsfólks rúmlega tíu íþróttafélaga innan og utan höfuðborgarsvæðisins.

 

Fleiri stunda íþróttir en áður

Fram kemur í niðurstöðum Ánægjuvogarinnar að iðkendum í skipulögðu íþróttastarfi í  9. og 10. bekk grunnskóla hefur fjölgað árin 2003 til 2022. Hlutfall þeirra sem sögðust nær aldrei stunda íþróttir fór úr 49% árin 2003 og 2006 í 37% árið 2010. Á síðasta ári sögðust 42% nemenda í þessum bekkjum aldrei stunda íþróttir.

Þá kemur fram í niðurstöðum Ánægjuvogarinnar að hlutfall nemenda í 9. og 10. bekk sem stunda íþróttir fjórum sinnum í viku eða oftar hækkar stöðugt frá árinu 2003 til 2010. Hlutfallið lækkaði lítið eitt aftur 2012 en nú árið 2022 stendur hlutfallið í stað og segja um 41% nemenda á þessu aldursbili stunda íþróttir með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar. Þeir nemendur sem segjast stunda íþróttir með íþróttafélagi einu sinni til þrisvar sinnum í viku hækkað frá árinu 2022 og svara 17% nemenda því til.  

Margrét Lilja benti á eftirtektarverðar upplýsingar úr gögnunum. Á sama tíma og um eða yfir helmingur barna sem koma frá heimilum þar sem eingöngu íslenska er töluð stundaði æfingar með íþróttafélagi á síðasta ári þá gegni öðru máli um nemendur af erlendum uppruna sem og nemendur sem skilgreina sig kynsegin þar sem greina má mun minni þátttöku.  

Dæmi um það er spurningin: Hve oft stundar þú íþróttir með íþróttafélagi? Greint eftir kynferði.

Niðurstaðan er sú að 42% stúlkna stunda íþróttir með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar og 19% 1-3 í viku. Á sama tíma svöruðu 46% drengja því að þeir stundi íþróttir með félagi fjórum sinnum í viku eða oftar og 18% 1-3 í viku.

Á hinn bóginn stundaði meirihluti nemenda sem skilgreinir sig kynsegin/annað ekki íþróttir með félagi, eða 66%. Einungis 16% stunda íþróttir með íþróttafélagi fjórum sinnum í viku eða oftar og 18% 1-3 í viku.

Keimlík niðurstaða er í þeim svörum sem fengust þegar íþróttaiðkun var greind niður eftir því hvort íslenska var töluð á heimili viðkomandi, annað mál eða eingöngu annað en færri ungmenni stunda íþróttir þar sem eingöngu annað tungumál er talað.

 

Besta forvörnin að æfa með íþróttafélagi

Margrét Lilja sagði áskoranir talsverðar. En niðurstöður könnunarinnar sýni að mikilvægt er að halda börnum í íþróttum, hampa fyrirmyndum og gæta þess að íþróttir séu fyrir alla því yfirgnæfandi meirihluti iðkenda er ánægður með íþróttafélagið sitt, þjálfara sinn, æfingaaðstöðuna og upplifir gott félagslíf með liði sínu.

Eins þurfi að ná til þeirra sem ekki eru í íþróttastarfi, því sýnt hafi verið fram á að þeim börnum og ungmennum sem stunda íþróttir í skipulögðu starfi líður betur en hinum auk þess sem þau eru mun ólík­legri til að nota vímu­efni, nikó­tín eða orku­drykki. 

Ánægjuvogin um allt land

Nú í ár var tekin ákvörðun um að gefa skýrslur Ánægjuvogarinnar út eftir skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi í stað þess að gefa út skýrslu fyrir hvert íþróttahérað fyrir sig. Þannig er hægt að skoða niðurstöður Ánægjuvogarinnar í samanburði við lýðheilsuvísa embættis landlæknis. Að auki fær hvert félag með fleiri en 15 iðkendur úr áður greindum árgöngum sérstakt blað með lykiltölum fyrir félagið. Í nokkrum tilvikum þar sem tilskilinn fjöldi náðist ekki voru útbúnar skýrslur fyrir sveitarfélagið.

Hér að neðan ná nálgast skýrsluna alla og upplýsingar fyrir hvern landshluta.

 

Hér að neðan ná nálgast skýrsluna alla og upplýsingar fyrir hvern landshluta.

Ánægjuvogin 2022