Fara á efnissvæði
31. mars 2022

Ásmundur Einar: Hagsæld samfélags fólgin í góðum aðstæðum barna og ungmenna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út sína fyrstu stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Ásmundur Einar Daðason kynnti stefnuna við setningu á ráðstefnunni Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2022 – Tækifæri og áskoranir í nýju landslagi í morgun.

Stefnan markar ákveðin tímamót í sögu málaflokksins og er hún vegvísir til framtíðar um það sem mennta- og barnamálaráðuneytið hyggst leggja áherslu á til að styðja við félags- og tómstundastarf. Aðgerðir byggðar á stefnunni miða að þvíað tryggja öllum börnum og ungmennum fjölbreytt og framúrskarandi tómstunda- og félagsstarf með virka þátttöku að leiðarljósi, að því er segir í frétt ráðuneytisins.

Æskulýðsráð vann að stefnunni. Ragnheiður Sigurðardóttir situr í ráðinu fyrir hönd UMFÍ.

 

 

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sagði í ávarpi sínu á ráðstefnunni það verkefni allra að búa börnum og ungmennum aðstæður sem geri þeim kleift að þroskast og blómstra enda sé hagsæld samfélagsins fólgin í því.

Ráðuneytið segir fram undan margvísleg verkefni sem stuðla eigi að framgangi stefnunnar. Ber þar hæst endurskoðun æskulýðslaga og þarfagreining um þjónustuvettvang tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna. Brýnt er að tengja málaflokkinn enn frekar við farsældarlöggjöfina til að styðja við samþættingu þjónustu við börn og ungmenni og nýta þá þekkingu og reynslu sem er til staðar.

Á eftir ávarpi ráðherra kynnti Svava Gunnarsdóttir, formaður Æskulýðsráð, stefnuna, Ársæll Már Arnarsson prófessor kynnti nýtt fyrirkomulag æskulýðsrannsókna á Íslandi og Halldóra G. Hinriksdóttir, MBA og forstöðumaður Seðlavers RB, fjallaði um ástæður þess að stefnur raungerist ekki. 

Gildistími stefnunnar er til ársins 2030 með aðgerðaáætlun til þriggja ára í senn. Fram undan eru spennandi tímar í málefnum barna og ungmenna.

Stefnuna má nálgast hér: Framtíðin: Stefna um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030