Fara á efnissvæði
20. júní 2023

Átak um aukna þátttöku fólks með fötlun í íþróttum

„Ísland er að innleiða áætlun um aukna þátttöku í íþróttum hjá vaxandi fjölda íþróttafélaga og félagsmiðstöðva til að tryggja að allir einstaklingar geti, óháð andlegrar og líkamlegrar getu, notið íþrótta með tilheyrandi ávinningi,‟ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Hann hélt ávarp á stofnfundi verkefnisins Global Leadership Coalition for Inclusion, sem ætlað er að auka þátttöku fatlaðra í íþróttastarfi. Stofnfundurinn var haldinn á heimsleikum fatlaðra sem fram fara í Berlín í Þýskalandi um þessar mundir.

Sagt er frá verkefninu á vefsíðu Stjórnarráðsins.

Brjóta niður múra

Global Leadership Coalition for Inclusion (GLC) er fjölþjóða og þverfaglegt átak sem hvetur þjóðir og alþjóðasamfélagið til marktækrar fjárfestingar í aðlögun allra þjóðfélagshópa að samfélaginu í gegnum íþróttir. Átakið nær m.a. til skóla- og frístundastarfs, auk almenns íþróttastarfs, með það að markmiði að brjóta niður aðskilnað og stuðla að þátttöku allra í félagslífinu.

 

 

Meðal annarra stofnríkja eru Bandaríkin, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Kína, Mongólía, Panama, Ghana, Kenýa, lýðveldið Seychelles-eyjar, Malta og  Svartfjallaland auk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, Lions-hreyfingarinnar, Harvard-háskóla, Stavros Niarchos Foundation og framkvæmdastjórnar ESB. Jafnframt voru um 150 lönd með áheyrnarfulltrúa í sal til að kynna sér framtakið í vikunni.

 

Valdefla börnin

Ásmundur sagði ennfremur stefnu stjórnvalda að innleiða þessa nálgun í skólastarf til að valdefla börn og ungmenni og fjölga kennurum og skólastofnunum sem styðjast við þessa aðferðarfræði sem hluta af náminu.

„Þetta gegnir lykilhlutverki við aðlögun komandi kynslóða,“ sagði Ásmundur Einar í ávarpi sínu

„Við hlökkum til að deila framvindu okkar vinnu með öllum áhugasömum og vitum sömuleiðis að við höfum mikið að læra af öðrum stofnaðilum.“

 

Brúum bilið

Mennta- og barnamálaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið settu í desember af stað samstarfsverkefnið „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“ sem miðar að því að efla íþróttaástundun fatlaðs fólks, ekki síst fatlaðra barna og ungmenna. Stuðningurinn er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SSRF).

Íþróttasamband fatlaðra er ábyrgðaraðili verkefnisins og er það unnið í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands. Auk ráðuneytanna þriggja eru bakhjarlar verkefnisins ÖBÍ og Þroskahjálp.