Fara á efnissvæði
04. september 2018

Aukum þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi

UMFÍ vekur athygli á nýútkomnum bæklingi sem hefur það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Markhópur efnisins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna.

Í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Sem dæmi má nefna: upplýsingar um æfingagjöld íþróttafélaga, frístundastyrki, mikilvægi þátttöku foreldra og kosti þess að hreyfa sig í skipulögðu starfi.

Bæklingurinn er gefinn út á sex tungumálum þ.e. á íslensku, ensku, pólsku, tælensku, litháísku og filippseysku.

Efnið er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ.

Efnið er nú þegar aðgengilegt á heimasíðu UMFÍ.

Smelltu hér til þess að skoða

 

Styrkur til félaga

Íþrótta- og ungmennafélögum stendur til boða að sækja um styrk að upphæð 180.000 krónur til að standa fyrir verkefni sem hvetur börn af erlendum uppruna til þátttöku í íþróttastarfi. Fimm styrkir verða í boði. Til þess að hljóta styrk þurfa félög að skila áætlun um hvernig nýta á fjármagnið. Tímarammi verkefnisins er frá september 2018 og til áramóta.

Eftir að verkefnunum lýkur munu ÍSÍ og UMFÍ safna saman gögnum frá þeim félögum sem hljóta styrk og deila reynslunni áfram til annarra félaga í landinu. Saman getur íþróttahreyfingin hjálpast að, miðlað reynslu og þekkingu og gert gott starf enn betra.

Umsóknarfrestur er til 17. september nk.

Smelltu hér til þess að sækja um