Fara á efnissvæði
10. maí 2023

Bandaríkjamenn forvitnir um tengsl íþrótta og forvarna

Fjölmennur hópur fólks frá Bandaríkjunum kom í heimsókn í Íþróttamiðstöðina í Laugardal til að fræðast um íslenska forvarnarmódelið og starf í þróttafélaga í forvarnarvinnunni.  

Hópurinn samanstóð af fulltrúum sex frumbyggjahópa frá Bandaríkjunum og nokkrum ríkisstarfsmönnum frá Washingtonríki auk þeirra Margréti Lilju Guðmundsdóttur og Jóns Sigfússonar frá ráðgjafafyrirtækinu Planet Youth.

Þær Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, héldu erindi um íþróttahreyfinguna, verkefni ÍSÍ, Ánægjuvogina sem Rannsóknir og greining framkvæmir fyrir ÍSÍ og UMFÍ og Auður fjallaði um skipulag íþróttahreyfingarinnar, áherslur UMFÍ ásamt verkefnum þess, samstarfi og stuðningi við sambandsaðila.