Fara á efnissvæði
17. apríl 2021

Benedikt tekur við sem nýr formaður UÍA

„Það er nauðsynlegt að endurnýja stjórnir félagasamtaka reglulega. Flott ungt fólk á milli þrítugs og fertugs hefur verið að taka við í stjórnum aðildarfélaga UÍA og nú fannst mér kominn tími á mig,‟ segir Gunnar Gunnarsson, fráfarandi formaður Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA). Á sambandsþingi UÍA í dag gaf Gunnar ekki kost á sér áfram sem formaður og tók Benedikt Jónsson við formannssætinu.

Gunnar hefur vermt formannsstól UÍA samfleytt í níu ár og einn dag en Benedikt kom inn í stjórnina árið 2017. Þrátt fyrir aðeins fjögurra ára stjórnarsetu hefur hann nú þar mestu reynsluna. Í fyrra gengu tveir úr stjórn UÍA og bættust Gunnar og Ester Sigurðardóttir í hóp þeirra sem hætta í stjórn UÍA. Í þeirra stað komu Guðjón Magnússon og Björgvin Stefán Pétursson í stjórnina. Önnur í stjórn eru þær Þórunn María Þorgrímsdóttir og Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, sem er varaformaður UÍA.

Auk þess að hafa verið formaður UÍA í níu ár og einn dag situr Gunnar jafnframt í stjórn UMFÍ. Hann segir enga breytingu verða á því.

„Þvert á móti. Ég hef fundið að áhugi minn hafi færsti í meiri mæli yfir til UMFÍ og get sinnt því betur,‟ segir hann.

Benedikt, sem er hægra megin á myndinni, segist taka við góðu búi. UÍA fagni 80 ára afmæli á árinu, félagið sé með endurnýjaða stjórn og trausta fjárhagsstöðu til að ráðast í þau verk sem þarf að vinna.

 

Aðildarfélög UÍA eru 15 talsins. Þar á meðal eru Íþróttafélagið Höttur á Egilsstöðum, Ungmennafélagið Austri á Eskifirði, Leiknir á Fáskrúðsfirði og Íþróttafélagið Þróttur á Norðfirði.

UÍA er einn 28 sambandsaðila UMFÍ. Sambandsaðilar UMFÍ skiptast í 21 íþróttahérað og 7 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru um 450 félög innan UMFÍ með rúmlega 270 þúsund félagsmenn.