Fara á efnissvæði
02. febrúar 2021

Birta hjá ÍBR: Við viljum fá ofbeldið upp á yfirborðið

„Fatlað íþróttafólk eru oftar þolendur kynferðislegs ofbeldis og áreitni en aðrir. Líka hinsegin og kynsegin íþróttafólk, fólk af erlendum uppruna og afreksíþróttafólk sem er að komast inn á Ólympíuleika eða langt í sinni íþrótt því það upplifir sig oft þurfa að láta allt yfir sig ganga til að ná sínu markmiði. Þetta viljum við ekki. Við viljum tryggja að allir verði í öruggu íþróttaumhverfi,“ segir Birta Björnsdóttir, verkefnastjóri siðamála hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR).

Á síðasta ári gaf ÍBR út bækling um ofbeldi og áreitni í íþróttum. Þar eru upplýsingar um það hvert fólk á að leita ef það hefur orðið fyrir ofbeldi eða áreitni í íþróttum, verkferlar fyrir íþróttafélögin um hvað þau eigi að gera komi upp mál af þessum toga, upplýsingar fyrir þá sem taka á móti tilkynningum um ofbeldi og þá sem verða vitni að ofbeldi eða áreitni eða hafa grun um að slík hafi eða eigi sér stað gagnvart íþróttafólki eða iðkendum í íþróttafélagi.

Þú getur smellt á myndina hér og lesið bæklinginn

Bæklingurinn á sér norska fyrirmynd sem ÍBR staðfærði yfir á íslenskar aðstæður. Håvard Ovregård, ráðgjafi norska Íþrótta- og Ólympíusambandsins og Íþróttasambands fatlaðra í Noregi, kynnti fyrir íslensku forsvarsfólki í íþróttahreyfingunni í vinnustofu sem haldin var í tengslum við Reykjavíkurleikana árið 2019. Vinnustofan fjallaði einmitt um siðareglur íþróttafélaga og verkferlana komi upp grunur um brot í starfi innan félaga.

Öll mál sett í hendur fagaðila

„Við viljum við fá öll þessi mál upp á yfirborðið og að iðkendur hafi vettvang til að geta talað  um þau og geti leyst frá skjóðunni ef eitthvað óæskilegt á sér stað,“ segir Birta og bætir við að ÍBR haldi utan um öll mál hjá íþróttafélögunum í Reykjavík. Til að sem flestir innan íþróttahreyfingarinnar séu upplýstir um þær siðareglur sem í gildi eru þarf íþróttafólk og starfsfólk íþróttafélaga að kynna sér þær vel og lesa bækling ÍBR.

Mismunandi leiðir eru til að koma málum í farveg innan ÍBR, að sögn Birtu.

„Sum félög hafa verið að vinna í að leysa sjálf mál sem koma upp hjá þeim. Við mælum ekki með því. Við erum með fagaðila hjá ÍBR sem við sendum inn í íþróttafélögin til að aðstoða þolendur og íþróttafélögin að leysa úr aðkallandi málum, þeim að kostnaðarlausu. En síðan höfum við sent önnur mál til samskiptaráðgjafa í íþrótta- og æskulýðsstarfi og eineltismál til Æskulýðsvettvangsins,“ segir Birta.

 

Ráðstefna um upplifun í íþróttum

Birta ræðir um aðgerðir ÍBR, leiðirnar til að greina frá ofbeldismálum og áreitni innan íþrótta á ráðstefnunni „Íþróttir fyrir alla“ sem haldin verður í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 4. febrúar. Ráðstefnan er hluti af Reykjavíkurleikunum, sem er einn af stærri íþróttaviðburðum ársins.

Að ráðstefnunni standa ÍBR auk ÍSÍ, UMFÍ og Háskólans í Reykjavík.

Ráðstefnan hefst klukkan 13:00 með opnunarávarpi Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra.

Á eftir fylgja erindi um raddir barna, tilraunaverkefnið „Frístundir í Breiðholti“, Arna Sigríður Albertsdóttir, sem hlaut mænuskaða eftir skíðaslys í Noregið árið 2006 segir frá því hvernig er að fara úr því að stunda skíðaíþróttir í handahjólreiðar, Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna ’78 fjallar um líðan hinsegin ungmenna í íþróttum og samkynhneigður Ólympíufari segir frá upplifun sinni.

Birta segir ávallt aukningu í í tilkynningum þegar ráðstefnur og málstofur sem þessar eru haldnar.

„Það koma alltaf mörg mál eftir hverja málstofu, fyrirlestur eða ráðstefnu um þessi mál. Þess vegna reynum við að halda ráðstefnu eða málstofu alltaf tvisvar á ári til að halda umræðunni lifandi,“ segir Birta Björnsdóttir hjá ÍBR.

Allir geta séð ráðstefnuna

Ráðstefnunni verður streymt bæði á YouTube-rás Reykjavíkurleikanna og á Facebook-síðu viðburðarins.

Ráðstefnan í beinni: https://www.rig.is/radstefna-20201

Þú getur skráð þig á viðburðinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/897685961041210/?active_tab=discussion

Bæklingur ÍBR um kynferðislegt ofbeldi og kynferðislega áreitni í íþróttum:

https://prismic-io.s3.amazonaws.com/ibr-is/83b2d9bf-54bd-4f89-b6db-61e9d9c30fa4_IBR20-sidamal-baeklingur.pdf

Hægt er að hafa samband á sidamal@ibr.is ef þig vantar aðstoð með ofbeldi eða áreitni í íþróttum.

Einnig er hægt að leita til Æskulýðsvettvangsins og samskiptaráðgjafa í íþrótta- og æskulýðsstarfi. 

Vefsíða Æskulýðsvettvangsins

Vefsíða Samskiptaráðgjafa