Fara á efnissvæði
21. júlí 2017

Bjó til torfærubraut fyrir fjallahjólafólk á Egilsstöðum

„Þetta hefur verið mikil vinna en virkilega gaman. Við höfum grisjað í gegnum Selskóg og búið til hjólabrautir. Þetta eru ekki eiginlegir slóðar heldur alvöru torfærur fyrir fjallahjólafólk,“ segir Haddur Áslaugsson á Egilsstöðum. Hann er er sérgreinarstjóri í fjallahjólreiðum á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Haddur er hjólagarpur Austurlands. Hann hefur verið í Hjólakrafti, sem heldur námskeið fyrir ungt fólk undir merkjur Þristar, íþróttafélagsins í Hallormsstað.

Haddur hefur ásamt fleirum sjálfboðaliðum unnið að því hörðum höndum í allt sumar að gera klárt fyrir Unglingalandsmótið, meðal annars smíðað spjöld til að merkja hjólabrautirnar í Selskógi. Brautirnar voru prufukeyrðar á Sumarhátíð Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA) um miðjan mánuðinn og gekk það vel.

Haddur segir að göngustígarnir í skóginum verði nýttir í keppni í fjallahjólreiðum auk þess sem farið verði í torfæruna. Börn og ungmenni á Egilsstöðum hafa hjálpað til við verkið, að sögn Hadds. „Þau hafa hjólað á brautunum, bælt grasið og sagt okkur hvað megi gera betur.“ Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Mótshaldari er UÍA. Auk fjallahjólreiða verður keppt í 23 öðrum greinum. Ítarlegar upplýsingar um mótið og er að finna á slóðinni: http://www.umfi.is/unglingalandsmot-umfi