Fara á efnissvæði
01. júní 2018

Brenniboltinn slær í gegn

Björg Inga Erlendsdóttir keppti í glímu á Unglingalandsmóti UMFÍ í Vík fyrir 13 árum. Nú snýr hún aftur á mót UMFÍ til að keppa í brennibolta.
Brennibolti er þegar orðinn með vinsælustu greinunum á Landsmótinu og fjöldi fólks þegar búinn að skrá sig í hann. 

Björg Inga Erlendsdóttir, sem verður 27 ára á þessu ári, er þar á meðal. Hún hefur æft brennibolta tvisvar í viku í Kórnum í Kópavogi síðastliðin tvö ár. 

Hún var ekki að leita að þessari grein þegar hún rak augun í auglýsingu um æfingar í brennibolta í Kórnum á Facebook en mundi samstundis eftir því hvað íþróttin var skemmtileg í grunnskóla og skellti sér á æfingu. Með henni keppa konur á öllum aldri.

„Ég veit ekki hvað við erum margar í brenniboltanum. En þetta er góður hópur, 4–5 í liði, og kannski fimm lið,“ segir hún og telur að flestar, sem hún æfir með, ætli að skrá sig í greinina á Landsmótinu auk karlaliðs. Þetta verður fyrsta keppni hópsins utan keppni innbyrðis. 

Björg þekkir til móta UMFÍ. Hún æfði glímu með Val á Reyðarfirði á yngri árum og keppti undir merki UÍA á Unglingalandsmótinu í Vík í Mýrdal um verslunarmannahelgina 2005. Hún segist nú hafa lagt glímubeltið á hilluna. „Brennó er ferlega skemmtileg íþrótt. Hún er erfið, eiginlega hörkupúl,“ segir Björg Inga og bætir við að óráðið sé hvort hún keppi í fleiri greinum. „Við fjölskyldan förum norður og skoðum hvað er í boði,“ segir hún. 

 

Viðtalið birtist í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Það er hægt að smella hér á hlekkinn og lesa blaðið allt. 

Skinfaxi, 1 tbl. 2018