Fara á efnissvæði
26. ágúst 2019

Breytt fyrirkomulag í keppni

Dagana 3. og 4. október á 2. hæð í nýju Laugardalshöllinni fer fram vinnustofa ætluð þeim sem sjá um fræðslu-og/eða mótamál í íþróttahreyfingunni. Yfirskrift vinnustofunnar er Meaningful Competition sem í lauslegri þýðingu gæti verið Keppni með tilgang og lítur að keppni hjá börnum og ungmennum.

Kandamaðurinn André Lachance frá Sport for Life hefur umsjón með stofunni. André hefur unnið með Hafnaboltasambandi Kanada síðan 2001 í þróunarmálum og þjálfaramenntun og sem þjálfari kvennalandsliðs Kanada. Að auki er hann prófessor við Háskólann í Ottawa og heldur fyrirlestra og vinnustofur á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur á síðastliðnu ári bæði haldið vinnustofur fyrir Íþróttasamband Svíþjóðar (RF) og Danmerkur (DIF).

Markmið með vinnustofunni er að:

Hámarksfjöldi þátttakenda er 40 manns og stendur vinnustofan frá kl. 09:00 - 16:00 báða dagana. Mikið er lagt upp úr hópavinnu. Verð er 12.500kr. Innifalið er hádegismatur, kaffi og léttar veitingar.

 

Sýnum karakter ráðstefna

Laugardaginn 5. október verður fjórða Sýnum karakter ráðstefnan haldin í Háskólanum í Reykjavík þar sem André Lachance verður einn af fyrirlesurum. Yfirskrift ráðstefnunnar er Hvernig getur keppnisfyrirkomulag búið til eða eyðilagt karakter? Nánari dagskrá kemur innan tíðar. 

Verð fyrir ráðstefnuna er 2.500kr. Vert er að geta þess að uppselt hefur verið á allar fyrri Sýnum karakter ráðstefnur til þessa.

 

Smeltu hér til þess að tryggja þér miða á vinnustofuna og á ráðstefnuna. 

 

Hvað er Sýnum karakter?

Sýnum karakter er átaksverkefni UMFÍ og ÍSÍ um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni.

Smelltu hér til þess að kynna þér verkefnið frekar.