Fara á efnissvæði
12. apríl 2023

Búið að opna fyrir skil á starfsskýrslum í Sportabler

Opnað var í dag fyrir starfsskýrsluskil sambandsaðila ÍSÍ og UMFÍ og félög innan þeirra vébanda í  Sportabler og verður hægt að skila inn skýrslum til 31. maí næstkomandi.

Prófanir hafa staðið yfir á kerfinu síðustu vikur á skilakerfinu og er nú allt tilbúið fyrir starfsskýrsluskil. Skilafrestur hefur í gegnum tíðina verið til 15. apríl ár hvert. En vegna tafanna hefur verið ákveðið að framlengja skilafrestinn til 31. maí nk.

 

Hvaða upplýsingar?

 

 

Við gerð nýja kerfisins var lagt upp með að notendaviðmótið væri einfalt og flestar upplýsingar forskráðar til hagræðingar fyrir notendur. Tenging er við upplýsingar úr Sportabler og upplýsingar um viðkomandi félag sóttar sjálfvirkt frá Skattinum.

Frá síðustu skilum hefur verið unnið að nokkrum lagfæringum eða uppfærslum, en auk þess er verið að uppfæra og betrumbæta yfirlit yfir skil.

Helstu breytingar sem notendur verða varir við hjá aðildarfélögum eru t.d.:

 

Stjórn og iðkendur

Við fyrstu skil í kerfinu þarf að skrá inn ýmsar upplýsingar um starfsfólk og stjórn en við næstu skil þá þarf eingöngu að uppfæra þær upplýsingar sem fyrir eru.

Hjá þeim félögum sem nota Sportabler í sínu daglegu starfi munu upplýsingar um iðkendur lesast sjálfkrafa yfir í starfsskýrslu en það er á ábyrgð félagsins að skoða samtölur iðkenda í starfsskýrslunni og staðfesta þær með skilum á skýrslunni.

Þeir sem ekki nota Sportabler í sínu starfi þurfa að lesa inn í skilakerfið upplýsingar um iðkendur.

 

Félagsmenn

Allir iðkendur eru sjálfkrafa félagsmenn og skapa þannig grunn að félagatali í nýja kerfinu. Ef félög halda að auki sérstakt félagatal fyrir aðra félagsmenn en þá sem eru iðkendur þarf að lesa það inn í nýja skilakerfið við fyrstu skil í kerfinu og uppfæra svo við hver skil.

Við starfsskýrsluskil gefst einstakt tækifæri til að uppfæra félagatal íþrótta- og ungmennafélaga þannig að þau endurspegli raunfjölda félagsmanna í hreyfingunni.

ÍSÍ og UMFÍ hvetja alla til að endurskoða félagaskrár sínar og yfirfara vel svo upplýsingar í nýja kerfinu. Með því verður einfaldara fyrir alla aðila að halda vel utan um félagatalið og uppfæra á milli ára.

Það er alltaf á ábyrgð hvers félags að yfirfara félagatal sitt áður en það er lesið inn og staðfesta réttan fjölda við skil.

ÍSÍ og UMFÍ árétta að gögnin í kerfinu verða aðeins rétt ef allir vanda sig og fara vel yfir þau gögn sem eru send inn og staðfest.

Reglulega er boðið upp á kynningu og fræðslu á nýja kerfinu. Á næstunni verða nánari upplýsingar um fyrirkomulag sendar á hvert hérað. Afar áríðandi er að ofangreindar upplýsingar skili sér til þess aðila innan hvers félags sem annast á starfsskýrsluskilin.

 

Hér má smella til að fara inn á skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ

 

Nánari upplýsingar varðandi starfsskýrsluskil veitir Elías Atlason, sérfræðingur hjá ÍSÍ. Netfangið hans er elias@isi.is og sími 514 4000. Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef spurningar vakna.