Fara á efnissvæði
25. maí 2022

Búið að opna fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50+

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri sem haldið verður í Borgarnesi dagana 24.-26. júní næstkomandi.

Mótið er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag til þess að taka þátt. Allir geta verið með og tekið þátt á sínum forsendum.

Þótt mótið sé alla jafna fyrir alla þá sem verða 50 ára á árinu og alla eldri þá getur fólk á öllum aldri tekið þátt í nokkrum greinum.

Þátttökugjald er 4.900 krónur og er fyrir það hægt að skrá sig í eins margar greinar og viðkomandi vill taka þátt í.

UMFÍ heldur mótið með Ungmennasambandi Borgarfjarðar (UMSB) og sveitarfélaginu Borgarbyggð.

Keppnisgreinar á mótinu eru: Boccía, bridds, frjálsar íþróttir, golf, götuhlaup (Flandrasprettur, sem er opin grein fyrir fólk á öllum aldri), hestaíþróttir, göngufótbolti, körfubolti (3:3), pílukast, pútt, pönnukökubakstur, ringó, skák, stígvélakast, sund og utanvegahjólreiðar sem skiptast í hefðbundnar fjallahjólreiðar og keppni fyrir rafhjól (opin grein fyrir 18 ára og yngri).

 

Smelltu hér til að skrá þig

Ítarlega upplýsingar má finna á

Heimasíða Landsmóts UMFÍ 50+

Viðburðasíða á Facebook

Sjáumst sem flest í Borgarnesi á Jónsmessunni!

 

Myndir frá fyrri mótum