Búið að opna fyrir starfsskýrsluskil

Opnað var fyrir skil á starfsskýrslum í kerfi ÍSÍ og UMFÍ í gær. Prófanir hafa staðið yfir á uppfærslum í skilakerfinu síðustu vikurnar og er nú allt tilbúið fyrir starfsskýrsluskilin.
Vefslóð á skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ
Stefnt er að því að bjóða upp á kynningu og fræðslu á skilum í kerfinu. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið verða sendar á hvert hérað ásamt hlekk á skráningarsíðu.
Hafa í huga
Starfsskýrsluskil þurfa að innihalda upplýsingar um félagsmenn og iðkendur á síðasta starfsskýrslutímabili, þ.e. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2024, ásamt innslegnum lykilupplýsingum úr ársreikningum fyrir síðasta starfsár (2024) og upplýsingum um núverandi stjórn og starfsfólk.
Einnig þarf að skila ársreikningi undirrituðum af stjórn og skoðunarmönnum á pdf-formi og núgildandi lögum á pdf- formi inn í kerfið.
Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ og 7. grein laga UMFÍ þurfa allir sambandsaðilar og félög innan þeirra vébanda að skila inn starfsskýrslum fyrir 15. apríl ár hvert.
Nánari upplýsingar gefur Elías Atlason, starfsmaður skilakerfis ÍSÍ og UMFÍ.
Netfang: elias@isi.is