Fara á efnissvæði
24. febrúar 2023

Dagný Finnbjörnsdóttir: Öflug og samræmd íþróttahéruð

„Stjórn HSV er sammála um að fækka þurfi samböndum og efla þau. Landfræðilega erum við ekki með tillögu að útfærslu eða hvaða leið sé best. En með sameiningu sveitarfélaga í Ísafjarðarbæ sameinuðust fjöldi ungmennafélaga og héraðssambanda í HSV. Það tókst og ætti að vera hægt að sameina enn frekar,“ segir Dagný Finnbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Héraðssambands Vestfirðinga, spurð út í vangaveltur um mögulegar breytingar á skipan íþróttahéraða.

Dagný segir ákvörðunina ekki snúast um pólitík eða peninga, heldur sé mikilvægt er að horft sé til þess að búa til öflug sambönd til að styrkja íþróttahreyfinguna.

„Við sjáum fyrir okkur að íþróttafélögin í kringum okkur myndu hafa hag að því að vera undir einu héraðssambandi með starfsmann sem sér um t.d. fræðslumál, styrkjamál, úthlutanir, samskipti við UMFÍ og ÍSÍ og fleira,“ segir hún en bendir á að endanleg útfærsla um skipan íþróttahéraða sé vissulega ekki á hreinu. Frekari upplýsingar vanti um m.a. hvaða útfærslu sé verið að skoða og hvernig verði með skiptingu lottós til sambandsaðila.

Í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti UMFÍ er fjallað um þá vinnu sem nú stendur yfir og snýr að því að endurskoða málefni íþróttahéraða með það fyrir augum að styrkja íþróttafélögin og starfið um allt land.

 

Af hverju?

Forsaga málsins er sú að afloknu sambandsþingi UMFÍ sem haldið var á Húsavík 15.–17. október 2021 skipaði stjórn UMFÍ, í samræmi við samþykkt þingsins, sérstakan vinnuhóp um íþróttahéruð og lottóreglur. Var hópnum ætlað að fara með mál í umboði stjórnar og samkvæmt samþykktum lögum UMFÍ.

Hópurinn var skipaður þeim Gunnari Þór Gestssyni, formanni, Guðmundi Sigurbergssyni, Guðmundu Ólafsdóttur, öllum úr stjórn UMFÍ, Jóhönnu Írisi Ingólfsdóttur frá USÚ, Dagný Finnbjörnsdóttur frá HSV, og Frímanni Ara Ferdinandssyni frá ÍBR.

Hlutverk hópsins er m.a. að halda áfram vinnu framtíðarnefndar um málefni íþróttahéraða og aðild allra íþróttahéraða að UMFÍ. Nefndinni var ætlað að skipa fulltrúa í nefnd um upplýsingakerfi ÍSÍ og UMFÍ og í vinnuhóp um íþróttahéruð á vegum ÍSÍ. Þá á nefndin að vinna í skilgreiningum á mælikvörðum íþróttastarfs í samvinnu við ÍSÍ. Einnig var nefndinni ætlað að setja á reglulega fundi á milli íþróttahéraða á vettvangi UMFÍ, ásamt því að taka við tilfallandi verkefnum frá stjórn UMFÍ á starfstíma sínum.

Hópnum er ætlað að ljúka störfum á sambandsþingi UMFÍ haustið 2023.

 

 

Ýmsar sviðsmyndir

Hópurinn kynnti vinnu sína og ýmsar tillögur á sambandsráðsfundi UMFÍ á Höfn í Hornafirði í október 2022.

Vangavelturnar eru í grófum dráttum þessar:

 

Mismunandi áherslur eru innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar eftir því á hvaða stig er litið. Á fyrsta stigi, hjá ÍSÍ og UMFÍ, er ákveðin umgjörð til staðar þar sem eru lög, regluverk, sjóðir og stuðningur. Þar er líka ákveðin sérþekking og sameiginleg þjónusta fyrir hreyfinguna alla.

Á öðru stigi eru íþróttahéruðin sjálf, sem eru flest með nærþjónustu í heimahéraði. Þau eru með verkefni og þjónustu fyrir aðildarfélög, hvert á sínu svæði, og má segja að samræming sé við önnur íþróttahéruð og áhersluverkefni.

Á þriðja stiginu eru svo íþrótta- og ungmennafélögin í landinu. Þau eru með skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem byggir á stuðningi frá íþróttahéraðinu.

Vinnuhópurinn hefur fundað nokkrum sinnum og m.a. tekið eina vinnustofu á Laugarvatni. Fullt samkomulag er í hópnum um að leggja til ákveðna vegferð og vinna tillögu á þeim nótum. Hópurinn kynnti m.a. á sambandsþinginu stjórnsýsluskipulagið eins og það er hjá Landssamtökum sveitarfélaga. Þar er stjórnun eftir landshlutum, með mörgum launagreiðendum, mörgum starfsstöðvum og dreifðri fjármögnun. Hjá sýslumannsembættinu er líka stjórn á landsvísu en einn launagreiðandi. Þar eru margar starfsstöðvar og miðlæg fjármögnun.

 

 

Hugsanleg sviðsmynd

Á sambandsþinginu setti hópurinn fram hugsanlega sviðsmynd. Hún fól í sér starfsstöðvar um landið sem myndu þjónusta nokkur íþróttahéruð. Starfsfólk á öllum starfsstöðvum væri með ákveðið samspil og samskipti yrðu milli starfsstöðva.

Nefnt var samstarf og samvinna við landshlutaskrifstofur sveitarfélaga. En einnig samstarf um verkefni á landsvísu, íþróttamál, lýðheilsu og mannvirki.

Í sviðsmyndinni er reiknað með að fjármögnun komi frá ríkinu og að starfsemin mæti markmiðum íþróttastefnu ríkisins um að efla íþróttahéruð. Einnig að fjármagn komi frá Lottói í gegnum ÍSÍ og UMFÍ. Úthlutun yrði annars vegar til landshlutastarfsstöðva og hins vegar almenn úthlutun.

Markmiðið yrði skilvirk og viðbragðsfljót hreyfing. Í því felst m.a. að styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu, að hreyfingin verði með skýra ábyrgð og hlutverk og að heildarsamtakamáttur verði þvert á ungmennafélagshreyfinguna. Betri nýting verði á mannauði og aðföngum, aukið og samræmdara samspil á milli eininga í hreyfingunni og öflugur stuðningur og þjónusta við félög og fjölbreyttar þarfir um land allt.

Hópurinn lagði áherslu á að skipulag íþróttahéraða væri lykilhluti af svarinu við því hvernig hreyfingin gæti náð markmiðunum um að vera skilvirk, samræmd og viðbragðsfljót hreyfing í takt við kröfur nútímans.

Á sambandsráðsfundinum fór hópurinn fram á að fá stuðning og umboð til þess að vinna tillögu varðandi skipulag íþróttahéraða frekar, í samvinnu við hreyfinguna. Þar yrði komið inn á fjármögnun, útfærslu og starfssvæði. Fundurinn samþykkti að veita hópnum umboð til áframhaldandi starfa á þeim nótum.

 

 

Fjallað er ítarlega um málið í Skinfaxa. Þar er auk Dagnýjar rætt við fleiri fulltrúa ungmennafélagshreyfingarinnar. Á meðal þeirra sem rætt er við eru:

 

Smelltu hér til að lesa Skinfaxa