Fara á efnissvæði
17. maí 2018

Einstaklega hugmyndarík ungmenni í Borgarfirði

„Það er einsdæmi að fá öll ungmenni í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla Borgarbyggðar saman. Nemendurnir voru duglegir og komu með flottar ábendingar og hugmyndir sem verða teknar áfram og unnið áfram með innan ungmennafélagshreyfingarinnar,“ segir Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) en hann var fundarstjóri í Umræðupartýi UMFÍ og UMSB sem fram fór í félagsheimilinu Logalandi í Borgarbyggð í gær.

Á viðburðinn mættu um 130 ungmenni úr 8., 9. og 10. bekk úr grunnskólum Borgarbyggðar. Tvö umræðuefni voru tekin fyrir. Annarsvegar hvaða breytingar vilja ungmenni sjá á íþróttastarfi sveitarfélagsins? og hins vegar hvernig fræðslu um forvarnir óska ungmenni eftir og hvernig er heppilegast að koma skilaboðum og upplýsingum til þeirra?

„Þetta var frábær dagur og heppnaðist mjög vel,“ segir Sigurður.

Á viðburðinum hélt Anna Lilja Björnsdóttir frá KVAN erindi um að vera besta útgáfan að sjálfum sér. Umræðustjórn og ritun var í höndum ákveðinna ungmenna úr hópi þátttakenda.

Það vakti eftirtekt í umræðunum að oft kom upp ósk um upphitaðan gervigrasvöll og stærra íþróttahús. Jafnframt komu fram óskir um val á fleiri íþróttagreinum eins og handbolta, dansi, skotfimi, bogfimi, motocrossi og hestamennsku. Einnig komu fram óskir um fjölbreyttari kynningar á því sem er nú þegar í boði. Ungmenni eru ánægð með frístundaaksturinn en væru til í að hafa hann í boði á fleiri dögum og einnig heim eftir æfingar.

Í seinna umræðuefninu um forvarnir og fræðslu komu fram óskir um fræðslu um ofþjálfun, meiðsli í hnjám, kvíða, félagslega einangrun, svefn, vímuefna- og áfengisneyslu. Ungmennin voru á því að heppilegast væri að nálgast þau með því að koma í skólann með fræðslu og best væri ef viðkomandi talaði af reynslu um hlutina. Einnig kom fram að stutt myndbönd næðu helst til þeirra.