Fara á efnissvæði
10. nóvember 2023

Ekki missa af gullinu!

Búið er að færa ráðstefnuna Vinnum gullið frá Gullteig á Grand Hótel yfir í salinn Silfurberg í Hörpu vegna góðrar skráningar. Á ráðstefnunni verða kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Ráðstefnan heitir Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi og verður hún haldin 20. nóvember næstkomandi.

Að ráðstefnunni standa Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúar íþróttahreyfingarinnar og aðrir ráðstefnugestir munu koma að mótun tillagnanna.

Ráðstefnan verður á milli kl.09:00 og 16:00 og er opin öllum. 

Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.

Opið er fyrir skráningu til og með 16. nóvember.

Skráning á ráðstefnuna

 

Efni ráðstefnunnar

  • Hvernig skörum við fram úr?
  • Hvert er besta fyrirkomulagið?
  • Hvað getum við lært af öðrum?
  • Hvernig styðjum við best við afreksíþróttafólk?

Þetta eru á meðal þeirra spurninga sem starfshópur mennta- og barnamálaráðherra um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks vinnur nú að því að svara og verða til umræðu á ráðstefnunni. Vésteinn Hafsteinsson, afreksíþróttamaður, -þjálfari, nýr afreksstjóri ÍSÍ og sérfræðingur hjá ráðuneytinu, leiðir starfshópinn.

Dagskráin

 

Skapa góða umgjörð

Áform um stóreflingu afreksíþróttastarfs hérlendis með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk verða kynnt á ráðstefnunni. Fjallað verður um hvernig skapa megi umgjörð fyrir unga íþróttaiðkendur til að vaxa og dafna, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. Þá mun þjóðþekkt afreksíþróttafólk koma sínum áherslum á framfæri og verður aðkoma sveitarfélaga og atvinnulífsins tekin fyrir. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

„Við höfum leitt saman færa og fjölbreytta sérfræðinga víða að í þessa vinnu sem náð hafa miklum árangri í íþróttum, við þjálfun afreksíþróttafólks og við rannsóknir,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. „Við viljum nýta sérþekkinguna innan íþróttahreyfingarinnar og skólasamfélagsins til að skapa umgjörð sem er jafn góð ef ekki betri en hjá keppinautum okkar.“

Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Opið er fyrir skráningar til og með 16. nóvember.

 

Skráning á ráðstefnu

Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur öll áhugasöm um árangur og afreksstarf til að mæta.