Fara á efnissvæði
25. september 2018

Ertu búin/n að senda inn umsókn í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ?

UMFÍ minnir á að opið er fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ til og með miðnættis 1. október. Umsóknir á þar til gerðu eyðublaði þurfa að berast fyrir þann tíma en úthlutun úr sjóðnum fer fram 1. nóvember næstkomandi. UMFÍ hvetur sérstaklega til þess að sótt verði um styrki vegna verkefna í samræmi við stefnu UMFÍ en þar er áherslan á ungt fólk, jaðarhópa og eldra fólk.

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.

UMFÍ úthlutar háum fjárhæðum til ýmissa verkefna á hverju ári. Á síðasta ári úthlutaði Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ 14,7 milljónum króna til tuga verkefna tengdum sambandsaðilum UMFÍ. Það sem af er ári hefur sjóðurinn úthlutað rúmum 8,7 milljónum króna til 79 verkefna.

Á meðal þeirra verkefna sem Fræðslu- og verkefnasjóður hefur veitt styrki fyrir eru Ungmennasamband Borgarfjarðar til að færa ljósmyndir á stafrænt form og hestamannafélagið Hörður vegna reiðskóla fyrir fatlaða og fólk með þroskahömlun.

Dæmi um fleiri úthlutanir fá sjá hér:

Úthlutun vor 2017

Úthlutun haust 2017

 

Hverjir geta sótt um í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ?

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum. Úthlutun úr Fræðslu- og verkefnasjóði fer fram tvisvar á ári, sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert.

Smella hér og sækja um styrk