Fara á efnissvæði
23. september 2021

Ertu með góða verkefnahugmynd?

Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) auglýsa eftir umsóknum frá íþróttahéruðum og íþrótta- og ungmennafélögum landsins.

Íþrótta- og ungmennafélögum stendur nú til boða að sækja um styrk að upphæð 250.000 krónur til að standa fyrir verkefni sem hvetur börn og ungmenni af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra til þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi. Fjórir styrkir eru í boði. Til þess að hljóta styrk þurfa félög að skila áætlun um hvernig þau hyggjast nýta fjármagnið. Tímarammi verkefnisins er veturinn 2021 – 2022. 

Eftir að verkefnunum lýkur munu UMFÍ og ÍSÍ taka saman gögn styrkþega og deila reynslunni til annarra íþrótta- og ungmennafélaga. Með þekkingaröflun og miðlun upplýsinga gerum við gott starf enn betra.

Þetta er í annað sinn sem UMFÍ og ÍSÍ útdeila styrkjum til aukinnar þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna. Hér er hægt að sjá hvernig verkefni hlutu styrk síðast.

Umsóknarfrestur er til 22. október. Smelltu hér til þess að sækja um.

 

Vertu með bæklingar

UMFÍ og ÍSÍ minna á bæklinginn Vertu með sem kom út haustið 2018. Markhópur bæklingsins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna og markmiðið með útgáfu hans að vekja athygli á mikilvægi þess að öll börn taki þátt í skipulögðu íþróttastarfi.

Í bæklingnum eru hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins.

Bæklingurinn er á níu tungumálum, þ.e. á íslensku, ensku, pólsku, taílensku, litháísku, filippseysku, arabísku, víetnömsku og spænsku (væntanlegur).

Smelltu hér til þess að skoða bæklinginn.