Fara á efnissvæði
16. júlí 2024

Eruð þið að koma í fyrsta sinn á Unglingalandsmót?

Það er ýmislegt sem gott er að vita þegar velt er fyrir sér hvort taka eigi þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ. Mótið fer fram í Borgarnesi dagana 1. - 4. ágúst. Það er fyrir öll ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára og fjölskyldur þeirra. 

Hvorki er krafa um að stunda íþróttir né æfa með tilteknu íþróttafélagi. Engu að síður skrá þátttakendur sig á mótið undir merkjum síns íþróttahéraðs. Ef þið búið sem dæmi í Hafnarfirði þá er keppt undir merkjum Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH). 

Borgfirðingar skrá sig undir Ungmennasambandi Borgarfjarðar (UMSB) og fólk af Suðurlandi skráir sig undir merkjum Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK), Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) nú eða Íþróttabandalags Vestmannaeyja (ÍBV) og svo framvegis. 

Undir liðnum Algengar spurningar má finna ítarlegri upplýsingar undir Íþróttahéruð: Skoða upplýsingar 

Það er líka kostur að vita undir merkjum hvaða íþróttahéraðs þú ert því þau niðurgreiða þátttökugjaldið. Hlutfallið er mishátt. Þú sérð niðurgreiðsluna þegar þú skráir þig á Unglingalandsmótið.

Skrá á Unglingalandsmót UMFÍ

Þegar þú gerir það velurðu héraðssambandið eða íþróttabandalagið sem þú tilheyrir, hvaða barn eða börn þú skráir og eftir greiðslu þá geturðu valið íþróttagreinar. 

 

Tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna

En hvað fylgir með við skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ? Jú, aðgangur að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna fylgir með. Aðeins þarf að greiða fyrir rafmagn og kostar það 4.900 krónur. Verðið hækkar reyndar eftir 29. júlí.

Hér greiðir þú fyrir rafmagn á tjaldsvæðinu

Íþróttahéruðin fá úthlutað svæði á tjaldsvæðinu og þess vegna eruð þið þegar komin með úthlutað svæði. Þarna gefst líka gott tækifæri til að kynnast nýju fólki af ykkar svæði. Ef vinátta verður til er jafnvel hugmynd að smella í lið í einhverri skemmtilegri grein - eða í afþreyingu með nokkrum.

 

18 fjölbreyttar keppnisgreinar

Á Unglingalandsmótum UMFÍ er ævinlega boðið upp á fjölda keppnisgreina. Í ár eru þær 18 talsins. 

Þetta eru greinarnar:

Badminton - Bogfimi - Borðtennis - Frjálsar íþróttir - Glima - Golf - Grasblak - Grashandbolti - Hestaíþróttir - Hjólreiðar - Knattspyrna - Kökuskreytingar - Körfubolti - Pílukast - Skák - Stafsetning - Sund - Upplestur.

Þú getur skoðað miklu meira um hverja grein á umfi.is.

Skoða greinar betur

En hvenær keppt í grasblaki og bogfimi og hvað með upplestur?

Þú finnur alla dagskrá hér: Dagskrá Unglingalandsmóts

Greinarnar eru langflestar miðsvæðis í Borgarnesi. Flestar greinarnar taka aðeins einn dag nema frjálsar íþróttir, sem standa yfir í tvo daga. 

 

Ofurhetjur og Bleikir bananar

Nokkrar greinar eru liðsgreinar og sumir safna sér saman og mynda lið og skíra þá liðin einhverjum nöfnum. Þau gera verið ansi skrautleg og er algengt að sjá lið eins og Ofurhetjurnar, Rothöggið, Sveppasulturnar, Bleiku banana og fleiri skemmtileg lið í skrautlegum búningum. 

Við skráningu í liðakeppni þá þarf hver og einn að ganga frá sinni skráningu, fyrst til að skrá sig. Viðkomandi stofnar liðið og eftir það geta aðrir skráð sig í liðið með að setja liðs nafnið í skráninguna.  

Ef þið eruð ekki með fullskipað lið, þá er hægt að bæta við liðsmanni með að senda tölvupóst á umfi@umfi.is.

Ef þú ert einstaklingur ekki með lið en vill taka þátt, þá skráir hann sig á mótið og velur við skráningu „án liðs”. Við hjá UMFÍ munum síðan setja viðkomandi þátttakanda í frábært lið. 

Liðakeppni er í eftirfarandi greinum: 

    Grasblak – 2 inná, mega vera 4 í liði (hvernig eru innáskiptingarnar)  

    Handbolti – 4 inná, mega vera 8 í hóp  

    Knattspyrna – 5 inná, mega vera 8 í hóp  

    Körfubolti - 3 inná, mega vera 5 í liði. 

 

Tónleikar og fleira fyrir alla fjölskylduna

Margt fleira er í boði fyrir alla fjölskylduna á Unglingalandsmótinu en keppni fyrir 11 - 18 ára. Engar áhyggjur! Mamma og pabbi, Sigga litla og Kári litli og stóri bróðir geta prófað allskonar greinar alla dagana. Fjölskyldan getur skellt sér í fjölskylduskokk á fimmtudeginum, frisbígolf, í kynningu á bogfimi, jóga, pickleball, blindrabolta, farið í leikjagarðinn, horft á fimleikasýningu, tekið þátt í sundleikum, sönggleði og mörgu fleiru fleiru. 

Tónleikar verða á hverju kvöldi á meðan Unglingalandsmótinu stendur. Tónleikarnir fara fram í risastóru samkomutjaldi sem verður á tjaldsvæðinu og enginn getur sagst ekki hafa tekið eftir því. 

Tónleikarnir eru innifaldir í þátttökugjaldinu og geta allir sem vilja sótt þá.

Á tónleikunum koma fram DJ Ísak og Ernir, bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór, GDRN, Sjgga Ózk, Björgvin úr Idolinu, hljómsveitin Meginstreymi og Júlí Heiðar. Orri Sveins mun síðan stýra brekkusöng á lokakvöldinu. 

Þú getur skoðað alla dagskránna á umfi.is: Dagskráin alla dagana

Unglingalandsmót UMFÍ er einstök upplifun fyrir alla fjölskylduna. Samvera og gleði frá morgni til kvölds þar sem allir finna verkefni við sitt hæfi og á sínum forsendum. Allir á aldrinum 11-18 ára geta keppt á mótinu.   

Skráning hér   

Almennar upplysingar