Fara á efnissvæði
25. júlí 2022

Eva María: Allir ættu að upplifa að fara á Unglingalandsmót UMFÍ!

„Það var aldrei spurning að fara á Unglingalandsmót hjá okkur, þetta var bara sjálfsagður hlutur, rétt eins og að jólin koma alltaf þá kom alltaf að Unglingalandsmóti. Þetta var ekki bara íþróttakeppnin heldur líka tónleikarnir á kvöldin og stemningin á tjaldsvæðinu,“ segir frjálsíþrótta- og afreksstelpan Eva María Baldursdóttir. Hún er fædd árið 2003 og býr ásamt fjölskyldu sinni á Selfossi. 

Eva María var um tíu ára þegar hún byrjaði að æfa frjálsar íþróttir. Hún hefur haldið sig að mestu við þær síðan. Hástökk hefur verið hennar sérgrein og á hún Íslandsmet í flokki 16–17 ára (1,81 metri). Hún stefnir þó á að slá gamalt met Þórdísar Gísladóttur sem er 1,88 metrar.

 

 

Eva María fór fyrst á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki árið 2014 og hefur síðan þá farið árlega á mótin með fjölskyldu sinni. Hún mælir með því að allir skelli sér á Selfoss um verslunarmannahelgina og taki þátt í Unglingalandsmótinu.

„Þetta eru geggjuð mót! Það er svo rosalega gaman að það ættu allir að upplifa það. En svo má líka bara taka rúntinn á Selfoss og fylgjast með, hitta fólk og skoða bæinn okkar,“ segir hún að lokum.

 

Skráning í fullum gangi

Rætt er við Evu Maríu í sérblaði um Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer á Selfossi um verslunarmannahelgina. Hér er hægt að lesa greinar blaðsins í heild.

Lesa sérblað Unglingalandsmóts UMFÍ

Skráning er í fullum gangi á mótið. Skráningin er í tveimur liðum. Fyrst er greitt þátttökugjald eftir því hvaða íþróttahéraði þátttakandi tilheyrir. Einnig er hægt að skrá sig án íþróttahéraðs/félags. Athugið að sum íþróttahéruð/félög niðurgreiða þátttökugjald að hluta eða öllu leyti fyrir þátttakendur á sínu svæði.

Smelltu HÉR til þess að greiða þátttökugjald. 

Þegar búið er að greiða þátttökugjaldið er gengið frá skráningu í einstakar greinar með því að smella HÉR

Ef þú lendir í vandræðum er velkomið að senda tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is eða hringja í þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568 2929.