Fara á efnissvæði
26. júní 2023

Farsæll endir á ukuleleleit

Á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fór í Stykkishólmi um helgina auglýstum við eftir ukukulele sem puttaferðalangurinn Angelika gleymdi í bíl eins mótsgesta þegar hún fékk far með honum frá Reykjavík og þar til leiðir skildu við Borgarnes. Sagan hlaut farsælan endi því mótsgesturinn sá umfjöllunina og kom ukuleleinu í þjónustumiðstöð mótsins í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi.

Angelika var að vonum í skýjunum þegar henni var tilkynnt að hljóðfærið hafi fundist. Starfsfólk og skipuleggjendur mótsins fundu annan mótsgest að vestan, sem tók ukuleleið með sér og sagðist mundu koma því til Suðureyrar en þar er Angelika búsett.  

 

Fleiri fréttir og myndir af Landsmóti UMFÍ 50+ er að finna á:

www.umfi.is

Facebook

Instagram