Fara á efnissvæði
26. apríl 2022

Fjöldi viðurkenninga á þingi UÍA

Þorvaldur Jóhannsson var sæmdur gullmerki  UMFÍ á ársþingi Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA) sem fram fór á Seyðisfirði sunnudaginn 24. apríl síðastliðinn. Á þinginu var Benedikt Jónsson endurkjörinn formaður UÍA auk þess sem stjórnin er óbreytt.

Sigurður Óskar Jónsson var fulltrúi UMFÍ á þingi UÍA. Hann afhenti Þorvaldi gullmerkið auk þess að að afhenda afmælisskjöld í tilefni af 80 ára afmæli UÍA á síðasta ári.

 

 

Við afhendingu gullmerkis UMFÍ sagði Sigurður Óskar:

„Þorvaldur hefur unnið óeigingjart starf fyrir Huginn undanfarna áratugi. Hann var formaður félagsins um skeið, aðalmaðurinn í skíðafélaginu, mjög virkur í golfklúbbnum og manna háværastur á hliðarlínunni í fótboltanum. Hann ásamt fjórum öðrum voru fyrst til þess að vera sæmd starfsmerki UÍA árið 1979. Þorvaldur var lengi skólastjóri á Seyðisfirði, bæjarstjóri og var sæmdur fálkaorðunni 2015. Þorvaldur hlaut starfsmerki UMFÍ 2011 og hlýtur í dag gullmerki Ungmennafélags Íslands.“

 

Auður Vala hlaut hvatningarverðlaun

Af öðrum viðurkenningum hlaut Auður Vala Gunnarsdóttir Hermannsbikarinn, hvatningarverðlaun UÍA fyrir sitt starf fyrir fimleikadeild Hattar.

Auður Vala var ein af fyrstu iðkendum fimleikadeildar Hattar þegar deildin byrjaði 1984 en deildin var stofnuð formlega 1986. Árið 1989 var Auður beðin að þjálfa hjá fimleikadeild Hattar ásamt nokkrum konum hér í bæ og þjálfaði til ársins 1991. Árið 2000 flytur Auður heim í Egilsstaðir og tók að sér starf yfirþjálfara fimleikadeildar Hattar. Nánast síðan þá hefur Auður starfað sem yfirþjálfari og séð um að staðið séð faglega að öllu starfi innan deildarinnar og náð glæsilegum árangri. Hún hefur verið sannur leiðtogi á þessu sviði hjá deildinni, Auður tók sér frí frá yfirþjálfun haustið 2018 en tók aftur við sem yfirþjálfari haustið 2020. Telja má líklegt að fáir eigi sé jafn langan feril sem yfirþjálfari innan fimleika á Íslandi. 

Auður Vala hefur hlotið þó nokkuð af viðurkenningum fyrir sitt starf, meðal annars fékk hún starfsmerki UÍA árið 2012, starfsmerki Fimleikasambands Íslands árið 2008, starfsmerki Hattar árið 2018 ásamt því að fá gullmerki Fimleikasambands Íslands árið 2019. Auður hlaut svo hinn eftirsóknaverða Þorrann (veitur á þorrablóti á Egilsstöðum) árið 2010 fyrir sitt framlag til fimleikaiðkunar á Fljótsdalshéraði.

 

Haraldur er íþróttamaður ársins

Þá var Haraldur Gústafsson valinn íþróttamaður UÍA árið 2021. Haraldur vann báða Íslandsmeistaratitlana í bogfimi (innandyra og utandyra) í Ólympískum sveigboga árið 2021. Hann vann einnig báða Íslandsmeistarartitlana í 50+ (öldunga). Haraldur vann öll önnur mót í sveigboga sem hann keppti í innanlands á árinu 2021.

Í innandyra heimsbikarmótaröð heimssambandsins (World Archery Indoor World Series - IWS 2021-2022) var Haraldur um tíma efstur á heimslista mótaraðarinnar og við lok ársins 2021 var hann meðal efstu 10 í mótaröðinni. Þegar öllum mótum sem tengd voru við heimsbikarmótaröðina var lokið í febrúar 2022 endaði Haraldur í 22 sæti í mótaröðinni og fleiri en 600 manns sem tóku þátt í mótaröðinni.

Þorvaldur Jóhannsson fékk gullmerki UMFÍ á þinginu.

Ólafía Þórunn StefánsdóttirÓlöf Hulda Sveinsdóttir og Bryndís Aradóttir fengu allar starfsmerki UÍA og vill UÍA óska öllu þessu frábæra fólki til hamingju með verðlaunin.