Fara á efnissvæði
01. október 2018

Fjölnir bætir við sig hokkídeild og listskautadeild

Á framhaldsaðalfundi Skautafélagsins Bjarnarins í gær var samþykkt tillaga um að ungmennafélagið Fjölnir taki yfir alla starfsemina frá 1. október 2018, þ.e. í dag. Fundurinn var vel sóttur og var tillagan samþykkt með rúmlega 80% atkvæða. Öll starfsemi Bjarnarins verður lögð inní Fjölni og þar verði stofnaðar tvær deildir, hokkídeild og listskautadeild sem taka við núverandi starfi Bjarnarins og starfrækja það áfram undir merkjum Fjölnis. 

Við gildistöku þessa samkomulags munu allir starfsmenn og  iðkendur Bjarnarins   færast yfir til Fjölnis.

 

Sterkari stoðir

Fram kemur í tilkynningu frá Fjölni að ungmennafélagið muni taka yfir allar íþróttalegar skyldur Bjarnarins, eignir, skuldir og skuldbindingar við þjálfara, iðkendur og samstarfsaðila sbr. 1. mgr.

Eftir að samkomulagið öðlast gildi verður engin starfsemi í Skautafélaginu Björninn.

Núverandi stjórnir í hokkýdeild og listskautadeild verða skipaðar stjórnir í sömu deildum hjá Fjölni fram að þeim tíma að haldnir verða aðalfundir í umræddum deildum þar sem kosning stjórna fer fram. 

Íþróttabandalag Reykjavíkur styður þetta samkomulag og mun færa styrki vegna starfsemi deildanna yfir til Fjölnis frá og með 1 október 2018.

Í samræmi við framanritað mun Fjölnir taka formlega við umræddri  starfsemi Bjarnarins frá og með  1. október 2018. Frá og með sama tíma mun Fjölnir  taka þá yfir samninga við ÍBR og Reginn.

Fram kemur í tilkynningu frá Fjölni að markmiðið sé að skjóta sterkari stoðum undir starfsemina almennt, bæta þjónustu og mæta auknum kröfum sem gerðar eru til íþróttafélagsins. 

 

4.000 iðkendur Fjölnis

Við þetta verður Fjölnir með 12 deilda félag og um 4.000 iðkendur á öllum aldri.  Staða félagsins styrkist í Egilshöll. Þar verður félagið með starfsemi á einum stað fyrir knattspyrnu, handbolta, körfubolta, karate, fimleika, frjálsar, hokkí, listskauta, íþróttir eldri borgara, íþróttaakademíu í samstarfi við Borgarholtsskóla ásamt skrifstofu og félagsaðstöðu. 

Skákdeild Fjölnis er í Rimaskóla, sunddeildin er í sundlaug Grafarvogs og Laugardalslaug. Til viðbótar er tennisdeild í Tennishöllinni í Kópavogi. Unnið er að því að koma henni í gang í Egilshöll á næstu mánuðum ásamt frekari uppbyggingu þar í framtíðinni enda félagið í stóru vaxandi hverfi og á marga iðkendur í austurborginni.