Fara á efnissvæði
30. júlí 2019

Forsetahjónin eru með á Unglingalandsmóti UMFÍ

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Elíza Reid forsetafrú ásamt börnum ætla að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.

Unglingalandsmót UMFÍ verður sett með formlegum hætti á íþróttavellinum á Höfn föstudaginn 2. ágúst og er á dagskránni að forseti Íslands flytji þar ávarp.

Forseti Íslands er verndari ungmennafélagshreyfingarinnar. Guðmundur Hjaltason, langafi Guðna Th. Jóhannessonar, mikill og ötull talsmaður hreyfingarinnar. Átti hann drjúgan hlut í að koma henni á laggirnar skömmu eftir aldamótin 1900 og var annar tveggja fyrstu ritstjóra Skinfaxa, tímarits UMFÍ.

 

LÍF OG FJÖR Á UNGLINGALANDSMÓTI UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin hefur verið frá árinu 1992 hefur unnið sér fastan sess hjá fjölskyldum um allt land sem helsti viðburðurinn um verslunarmannahelgi.

Mótið er fyrir 11-18 ára þátttakendur sem reyna við sig í fjölda stórskemmtilegra íþróttagreina. Vinsælustu greinar mótsins eru knattspyrna, frjálsar íþróttir og körfubolti. En 18 aðrar íþróttagreinar verða í boði. Þar á meðal eru bogfimi, hlaupaskotfimi, frisbígolf, glíma, götuhjólreiðar, motocross, stafsetning, upplestur og meira að segja kökuskreytingar.

 

Margt í boði fyrir alla fjölskylduna

Þótt keppnisgreinar eru ætlaðar 11-18 ára þá er margt í boði fyrir alla fjölskylduna sem kemur á mótið. Í námunda við íþróttasvæðið verður sett upp leikjatorg og verður þar hægt að fara í brennibolta, fótboltapool, ringó, ganga á stultum og margt fleira.

Auk alls þess sem fylgir aðgangi að mótinu verða tónleikar á hverju kvöldi á meðan Unglingalandsmótinu stendur. Á mótinu kemur fram helsta tónlistarfólk þjóðarinnar. DJ Sura, sem hefur gert það gott með Cyber og Reykjavíkurdætrum, setur kvöldvökurnar strax fimmtudaginn 1. ágúst. Kvöldið eftir stíga á stokk rappbræðurnir í Úlfur Úlfur og Salka Sól, síðan koma Bríet og Evróvisjónstjarnan Daði Freyr. Una Stef og hljómsveit og GDRN loka svo mótinu sunnudagskvöldið 4. ágúst.

Meira um Unglingalandsmót UMFÍ á www.ulm.is

 

Myndir frá Unglingalandsmótum UMFÍ í gegnum tíðina