Fara á efnissvæði
14. desember 2020

Forsetinn verðlaunaði Sigríði, Sóleyju og Ásdísi

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, veitti verðlaun Forvarnardagsins á Bessastöðum laugardaginn 12. desember síðastliðinn. Guðni átti góða stund með verðlaunahöfum en sóttvarnarreglur voru hafðar í hávegum og því einungis nemendurnir og foreldrar þeirra viðstaddir afhendinguna.

Verðlaunin voru veitt þremur einstaklingum sem gáfu rétt svör við spurningu um lykilþætti að góðu lífi sem felst í verndandi þáttum áfengis- og vímuefnanotkun og hlutu þeir 50 þúsund króna innieign í verslun 66°Norður. Hugmyndin á bak við verðlaunin tengist því að nemendur geti valið sér flíkur sem henta til útivistar sem er heilsueflandi. Nemendur í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla fá fræðslu um þá þætti á Forvarnardaginn á vegum síns skóla. Það tóku 360 nemendur þátt í ár.

Þeir sem sem voru dregnir út voru:

Sigríður Birta Skarphéðinsdóttir, Grunnskóli Fjallabyggðar, Siglufirði

Sóley Bestla Ýmisdóttir, Verzlunarskóli Íslands, Reykjavík

Ásdís Bára Eðvaldsdóttir, Heiðarskóli, Reykjanesbæ

Embætti landlæknis stendur að deginum í samstarfi við embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samfés, Heimili og skóla og Samstarfi félagasamtaka í forvörnum. 

Stýrihópur Forvarnardagsins óskar þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn.