Fara á efnissvæði
04. október 2023

Forvarnardagurinn haldinn í 18. sinn í dag

Forvarnardagur 2023 er í dag. Á Forvarnardaginn er sjónum beint sérstaklega að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Skólar skrá sig til þátttöku og vinna verkefni Forvarnardagsins á tímabilinu 4.-20. október. 

Forvarnardagurinn er ævinlega 4. október ár hvert og verður hann settur nú með formlegum hætti í 18. sinn með málþingi í Borgarholtsskóla í Grafarvogi klukkan 10:30. 

 

Dagskrá málþingsins:

Skólastjóri býður gesti velkomna
Fundarstjórn – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs Embættis landlæknis

Til máls taka og dagskrá:

  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
  • Alma D. möller, landlæknir.
  • Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir, þekkingarstjóri hjá Planet Youth flytur erindið: Hugum að því sem virkar í lífi barna og ungmenna.
  • Starfsfólk og nemendur úr Borgarholtsskóla segja frá heilsuviku skólans og framkvæmd við 
    dagskrá Forvarnardagsins á síðasta ári.

Myndataka, samstarfsaðilar og ungmenni.

Nokkur ungmenni verða viðstödd málþingið og verða þau tilbúin að veita viðtöl. 

Málþinginu verður einnig streymt. Hægt verður að nálgast hlekk á streymið á vef Forvarnardagsins samdægurs. Upptaka af viðburðinum verður auk þess aðgengileg á vef Forvarnardagsins eftir málþingið.

Embætti landlæknis fer með verkefnastjórn Forvarnardagsins og samstarfsaðilar eru embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Rannsóknir og greining, Planet Youth, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Samfés, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samstarf félagasamtaka í forvörnum, Bandalag íslenskra skáta og Heimili og skóli. 

 

Um Forvarnardaginn:
Verkefni Forvarnardagsins hafa frá upphafi verið byggð á rannsóknum. Skólar fá aðgang að verkefnum í glæruformi þar sem kennarar fara yfir verndandi þætti og hvað hægt er að gera til að auka vellíðan. Rannsóknir hafa sýnt að samvera með fjölskyldunni, þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og það að leyfa heilanum að þroskast án neikvæðra áhrifa eru verndandi þættir fyrir áhættuhegðun.

Nemendur nýta þetta efni svo til umræðu í hópavinnu og skrá hugmyndir sínar um hvað veitir þeim vellíðan og hefur áhrif á góða heilsuhegðun, um samskipti og samveru með foreldrum og fjölskyldu, áhrif félagsþrýstings o.fl. Einnig ræða nemendur í framhaldsskólum um þá ákvörðun að drekka ekki eða seinka því að byrja að drekka áfengi og hvaða þættir hafa áhrif á þá ákvörðun.

Nemendum býðst að taka þátt í leik sem verður á vefsíðu Forvarnardagsins www.forvarnardagur.is þar sem þau vinna með efni í tengslum við Forvarnardaginn. Forseti Íslands afhendir verðlaun við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðar á árinu.