Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ: Lumarðu á góðu verkefni?
Nú er búið að opna fyrir sambandsaðila og aðildarfélög sem vilja koma góðu verkefni á koppinn. Einhverju sem nýtist iðkendum á einn eða annan hátt. Nú er aldeilis tækifærið því búið er að opna fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ.
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ styrkir félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.
Hverjir geta sótt um í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ?
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.
Úthlutun úr Fræðslu- og verkefnasjóði fer fram tvisvar á ári, sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert.
Sjóðurinn hefur meðal annars veitt styrki sem ætlað er að fjölga stelpum í fótbolta, fjármagna fyrirlestur í hugarþjálfun, afmælisblað, ritun sögu félags, námskeið í skyndihjálp og margt fleira.