Fræðslu- og verkefnasjóður úthlutar 8,3 milljónum
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur úthlutað rétt tæpum 8,3 milljónum króna til 135 verkefna. Ljóst er að eftirspurnin eftir styrkjum úr sjóðnum er umtalsverð en 199 umsóknir bárust í sjóðinn upp á tæpar 50 milljónir króna.
Á meðal verkefna sem hlutu styrki nú var fræðsla um innleiðingu rafíþrótta hjá aðildarfélögum UMFÍ, fyrirlestrar um jákvæð samskipti, sundleikfimi fyrir eldri borgara hjá Sundfélaginu Rán á svæði Ungmennasambands Eyfirðinga (UMSE), styrkir til Rafíþróttadeildar Þórs á Akureyri, fyrirlestur um jákvæða þjálfun og hugarþjálfun og fyrirlestur um svefn.
Upplýsingar um alla styrkina má sjá á vef UMFÍ.
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf aðildarfélaga UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.
Úthlutun úr Fræðslu- og verkefnasjóði fer fram tvisvar á ári, sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert og var þetta vorúthlut sjóðsins.
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.