Fara á efnissvæði
06. nóvember 2018

Fræðslu- og verkefnasjóður úthlutar tæpum 7,5 milljónum króna

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur úthluta tæpum 7,5 milljónum króna til rúmlega hundrað verkefna. Talsverð eftirspurn var eftir styrkjum úr sjóðnum en umsóknir bárust fyrir styrkjum upp á rétt tæpar 20 milljónir króna. Með úthlutuninni nú hefur sjóðurinn veitt rúmar 16,2 milljónir króna í styrki.

Á meðal þeirra verkefna sem styrkt eru að þessu sinni eru kynning á samhæfðu sundi hjá Fjölni í Grafarvogi, efling íþrótta eldri borgar á vegum Breiðabliks, gerð heimildarmyndar um sögu UMFÞ, fyrirlestur um hugarþjálfun hjá HSK, kóreógrafíunámskeið fyrir dansþjálfara og margt fleira.

Hér má sjá hvaða verkefni hlutu styrk

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi. 

Úthlutun úr Fræðslu- og verkefnasjóði fer fram tvisvar á ári, sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert og var þetta nóvemberúthlutunin.

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

 

Meira um sjóði UMFÍ