Fara á efnissvæði
05. júní 2024

Frestur framlengdur til að sækja um styrki í þágu farsældar barna

Mennta- og barnamálaráðherra hefur framlengt frest til að sækja um styrki frá frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni, þar á meðal menntun, frístundir, íþróttir, vernd og réttindi barna, í þjónustu við börn og fjölskyldur, m.a. forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu og þ.m.t. börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Félagasamtök sem hljóta styrki á fjárlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum fjárlaga fyrir sömu verkefni. Um er að ræða eins skiptis styrki sem eru ætlaðir sem hluti af innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

 

Þetta eru styrkirnir

Styrkir eru veittir þeim sem uppfylla skilyrði til að fá styrk samkvæmt mati ráðherra, sjá reglur um styrkveitingar mennta- og barnamálaráðherra.

Miðað er við að styrkfjárhæðir séu á bilinu 200.000 kr. til 3.000.000 kr., en í undantekningartilvikum er unnt að veita hærri styrki.

Sótt er um styrk á Mínum síðum á vef Stjórnarráðsins undir mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Frestur til að leggja fram umsókn var til föstudagsins 7. júní 2024 en hefur verið framlengdur um tvær viku, þ.e. til föstudagsins 21. júní. 

Umsókn skulu fylgja upplýsingar um verkefnið, hvernig umsækjandi hyggst vinna verkefnið og hvort það hefur notið styrkja frá öðrum aðilum. Vakin er athygli á því að umsækjandi kann að þurfa að leggja fram frekari upplýsingar, m.a. um faglega hæfni og rekstrarhæfi, samkvæmt leiðbeiningum ráðuneytisins.

 

Lög um samþttingu þjónustu í þágu farsældar barna

Reglur um styrkveitingar mennta- og barnamálaráðherra

Mínar síður Stjórnarráðsins