Fara á efnissvæði
02. desember 2020

Frumvarp um stuðning við launakostnað íþróttafélaga birt á Alþingi

Frumvarp félagamálaráðherra til laga um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar á tímum kórónuverufaraldursins var útbýtt á Alþingi á mánudag, 30. nóvember. Þetta er fyrsta skrefið í þríþættum aðgerðum sem þau Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynntu fyrir mánuði.

Frumvarpið á eftir að fá efnislega meðferð á Alþingi en er ein af þremur aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings íþrótta- og æskulýðsfélögum. Frumvarpið er lagt fram af Ásmundi Einari Daðasyni en hinar aðgerðirnar eru á borði mennta- og menningarmálaráðuneytis og snúa að stuðningi vegna tekjufalls og rekstrarkostnaðar.

 

Heildarfjárhæð aðgerðanna þriggja er áætluð nema um 2-2,5 milljörðum króna á árinu ásamt styrkjum hins opinbera til æskulýðs- og íþróttafélaga sem ÍSÍ mun sjá um.

 

Mikilvægt framlag stjórnvalda

„Það er geysilega mikils virði hversu vel stjórnvöld hafa sýnt skjót viðbrögð og komið kröftuglega til móts við þetta mikla rekstraráfall sem íþróttahreyfingin hefur orðið fyrir á árinu. Við metum framlagið mikils, en því miður tel ég líkur á að við séum ekki komin yfir þennan kafla,“ segir lögfræðingurinn Þórir Haraldson, fulltrúi UMFÍ í vinnu við frumvarpið um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar á tímum kórónaveirufaralds.

Þórir þekkir afar vel til skipulags íþrótta- og æskulýðsstarfs. Hann er fyrrverandi formaður Ungmennafélags Selfoss, núverandi formaður handknattleiksdeildarinnar og hefur setið í stjórn UMFÍ ásamt því að koma að starfi fjölda nefnda og ráða hjá samtökunum.

 

Tekjuleiðir félaga hafa gufað upp

Þórir segir COVID-faraldurinn og áhrif hans hafa valdið því að tekjur margra félaga og deilda hafi hrunið, styrktaraðilar horfið og fleiri tekjuleiðir gufað upp.

 

 

„Mörg félög misstu stórar fjárraflanir í vor vegna lokana, sumarið var fjárhagslega mjög erfitt en þegar haustaði þá versnaði staðan enn með áframhaldandi tekjufalli, fækkun áhorfenda eða áhorfendabanni, samdrætti hjá stuðningsaðilum, og banni við starfsemi. Þau félög sem reka metnaðarfullt barna- og unglingastarf og þau sem eru til viðbótar með öfluga meistaraflokka eiga mjög erfitt með að lifa af tekjufall á haustmánuðum. Því er afar brýnt að bregðast hratt við tekjufalli haustmánaða áður en í óefni er komið.  Á sama tíma verðum við að gera allt sem hægt er til að veita þessa mikilvægu þjónustu og við höfum miklar áhyggjur af þeim ungmennum sem standa höllum fæti,“ segir hann og bætir við að þetta sé ekki allt og sumt. Þegar starfsemi félaganna raskist þá verði afleiðingarnar víðtækar.

„Þegar mót og æfingar falla niður þá missa félögin tengslin við fólkið sitt, iðkendur, foreldra yngri iðkenda og sjálfboðaliðana sem eru tilbúnir til að leggja félaginu lið. Þetta er svo mikilvægur liður í starfinu og til mikils að vinna að halda honum lifandi. Það verður krefjandi verkefni að virkja aftur til átaka þann mikla mannauð sem liggur í þúsundum sjálfboðaliða,“ segir Þórir.

UMFÍ þakkar menntamálaráðherra, félags- og barnamálaráðherra og ríkisstjórn fyrir stuðninginn við íþrótta- og æskulýðstarf á landinu.

 

Sjá: Frumvarp til laga um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar á tímum kórónuveirufaraldurs.